Andlitsmeðferð og efnafræði snyrtivara – 2021 útgáfa

kr. 17.550

Starfssvið snyrtifræðinnar er afar fjölbreytt. Það nær til alls þess er varðar húðina og undirliggjandi vefi, hvort sem um er að ræða andlitsmeðferð, handsnyrtingu, fótsnyrtingu eða líkamsmeðferð.

Í þessari bók er fjallað um andlitsmeðferð og efnafræði snyrtivara með hliðsjón af námskrá mennta- og menningarmálaráðuneytisins í snyrtifræði. Bókin skiptist í fimm hluta. Fyrstu þrír hlutarnir eru grunnmeðferð A, B og C, fjórði hlutinn er um sérhæfðar meðferðir og sá fimmti um efnafræði snyrtivara og notkun þeirra. Þetta er afar vandað, ítarlegt og tímabært verk, það fyrsta sinnar tegundar á íslensku.

Hér er á ferðinni ný og endurskoðuð útgáfa bókarinnar en hún var tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis árið 2012.

  • Höfundar: Á. Bergljót Stefánsdóttir og Guðrún Pétursdóttir

  • Útgáfuár: 2021

  • 249 bls. / ISBN 9789979674870

Categories: , SKU: AN-74870

Lýsing

Vörunúmer IÐNÚ: AN-74870

Additional information

Þyngd 700 kg

Senda fyrirspurn