Lýsing
Vörunúmer IÐNÚ: FEK-0600
Heildarkort af Íslandi – Örnefnaskrá og vegalengdir
Ferðakortið er vandað heildarkort af landinu með hæðarskyggingu. Kortið inniheldur upplýsingar um vegakerfi landsins og veganúmer, auk upplýsinga um ferðaþjónustu svo sem bensínafgreiðslur, sundlaugar, söfn og fleira.
Örnefnaskrá með 3000 örnefnum og tafla um vegalengdir fylgja með kortinu í gegnum QR-kóða.
Kortið er prentað á slitsterkan og vatnsheldan pappír, sem auk þess er umhverfisvænn. Þannig tryggjum við betri endingu kortsins og það þolir betur íslenska veðráttu.