Lýsing
Ferðakortabók með þéttbýliskortum í mælikvarðanum 1:500:000. Í henni eru upplýsingar um bensínstöðvar, tjaldsvæði, sundlaugar og söfn svo fátt eitt sé nefnt. Einnig eru í bókinni nýjustu upplýsingar um vegakerfi landsins og vegnúmer. Ítarleg götukort en auk höfuðborgarinnar eru kort af helstu þéttbýlisstöðum á landinu. Ýmsar aðrar upplýsingar eru í bókinni, s.s. gróðurkort, jarðfræðikort, þjóðminjakort og kort yfir friðlýst svæði. Ítarleg nafnaskrá er í bókinni með yfir 3.000 örnefnum. Ferðakortabókin er í afar handhægu broti og fer vel hvort sem er í hanskahólfi eða bakpoka. Algjörlega ómissandi ferðafélagi!