topleft
topright
Fullt út úr dyrum Print Senda
Ráðstefna Iðnmenntar, Starfsmenntun, skóli – atvinnulíf – gildi starfsmenntunar í íslensku samfélagi, var haldin nýlega á Grand Hótel Reykjavík. Um 150 manns sóttu ráðstefnuna, hlýddu á fjölbreytta fyrirlestra í byrjun og tóku svo þátt í hópastarfi eftir kaffihlé.
 
Fyrirlesarar voru: Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, sem talaði um stefnu ráðuneytisins í starfsmenntun, Baldur Gíslason, skólameistari Tækniskólans, sem rakti þróun starfsmenntunar frá meistaranámi til verknámsskóla, Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem ræddu sýn atvinnulífsins á starfsmenntun, Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs HÍ, sem talaði um skólavæðingu menntunar og hversu lengi menntunin dugar og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, sem kynnti helstu þætti um bestu leiðir í starfsmenntun að mati OECD. Ráðstefnustjóri var Ársæll Guðmundsson, skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði.

Meginniðurstaða ráðstefnunnar var að efla þurfi samstarf allra þeirra sem að starfsmenntun koma. Skerpa þarf á stöðu nemenda í starfsþjálfun á vinnustað og er notkun markmiðssettra ferilbóka þar grundvallaratriði. Rætt var um eflingu og styrkingu starfsmenntunar, m.a. til að fækka þeim sem eru ómenntaðir á vinnumarkaðnum. Fram kom á ráðstefnunni mikill hugur til að efla starfsmenntun í landinu og mikilvægi náms á vinnustað eða undir leiðsögn meistara.
 
Fullt var út úr dyrum og má ljóst vera að áhugi á starfsmenntun á framhaldsskólastigi er mikill.

Hér fyrir neðan er svo hægt að nálgast glærur fyrirlesara, niðurstöður hópavinnu og upptökur af ráðstefnunni.

 

 

 

 

Iðnmennt SES ▪ Brautarholti 8 ▪ 105 Reykjavík ▪ Sími 517 7200 ▪ Fax 552 6793 ▪ idnu(hjá)idnu.is ▪ www.idnu.is

Ráðgjöf.net - Vefhönnun
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates