|
Höfundur: Ásdís Jóelsdóttir
Í bókinni er að finna ítarlegar leiðbeiningar um máltöku og hvernig taka á upp snið, velja hentugt efni, vinna með sniðbreytingar og sníða. Megininnihaldið eru saumtækniaðferðir í máli og myndum, s.s. ýmsar gerðir af rennilásum, vösum, krögum, ermaklaufum og ermalíningum. Einnig er farið í vinnuferli við saum á fatnaði og hvernig fóðra á einfaldan jakka, pils og vesti. Stutt yfirlit er um saumavélina, textílfræði, orðskýringar, fatasögu og hvernig vinna má með eigin hugmyndir.
192 bls, 2011, ISBN 9789979672913
Verð: 4620 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
Bókin er einstök að því leyti að ekki hefur áður verið gefin út samsvarandi og jafn ítarleg saumaleiðbeingabók eftir íslenskan höfund, en höfundurinn, Ásdís Jóelsdóttir, hefur einnig handteiknað allar leiðbeiningamyndir í bókinni. Ásdís hefur þróað og kennt fata- og textílhönnun á framhaldsskólastigi í fjöldamörg ár. Áður útgefnar bækur eftir hana eru Tíska aldanna og Saga fatagerðar og fatahönnunar á Íslandi, en einnig hefur Ásdís þýtt bækurnar Snið og sniðteikningar fyrir kven- og herrafatnað.
Bókin hentar fyrir grunn-, framhalds- og háskólastigið sem og fag- og áhugafólki. |