|
Höfundur: Nanna Kristín Christiansen
Þessi bók er skrifuð fyrir grunnskólakennara og foreldra grunnskólabarna í þeim tilgangi að vekja þá til umhugsunar og umræðu um hlutverk sitt og benda á mikilvægi samstarfs foreldra og skóla. Með bókinni er hvatt til þróunar samstarfs í samræmi við þarfir og væntingar samtímans, bent er á mögulegar leiðir, hagnýtar upplýsingar og ráð sem stuðlað geta að árangursríku samstarfi foreldra og kennara (úr inngangi höfundar).
240 bls., endursk. útg. 2011, ISBN 9789979672784
Verð: 4770 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
Efnisyfirlit:
Fyrsti hluti - Hvað segja rannsóknir okkur um samstarf skóla og foreldra í sögulegu og félagslegu samhengi?
1. Hvers vegna samstarf skóla og skólaforeldra?
2. Fjölskyldan og skólinn í breyttu samfélagi
3. Nýi kennarinn
4. Frá samskiptum til samstarfs
5. Sögur af samstarfi
Annar hluti - Skólaforeldrar
6. Hagnýt ráð og upplýsingar til skólaforeldra
7. Heimanám
8. Innbyrðis samstarf skólaforeldra um nemendahópa/bekki
9. Samstarf um skólann sem heild
Þriðji hluti - Hagnýtar tillögur og verkefni fyrir kennara í tengslum við foreldrasamstarf
10. Tillögur að hagnýtum verkefnum sem stuðla að samstarfi um hvert einstakt barn
11. Skólaforeldrar í skólastofunni
12. Foreldraviðtöl / samráðsfundir
13. Samtalsfærni og mögulegar hindranir sem þarf að yfirstíga
14. Tillögur um samstarf kennara og skólaforeldra
15. Kerfisbundnari leiðir - hvað er barninu fyrir bestu?
Höfundur bókarinnar, Nanna Kristín Christiansen, er móðir, kennari, ráðgjafi og M.ed. í uppeldis- og menntunarfræði og hefur starfað að málefnum grunnskólans í 30 ár. |