|
Trésmíði - hönnun, útfærsla, verkskipulag |
|
|
|
Höfundar: Walter Ehrmann, Wolfgang Nutsch og Bernd Spellenberg
Sigurður H. Pétursson þýddi
Í bókinni er fjallað um flest það sem trésmíði viðkemur og lögð áhersla á að sýna efni og útfærslur í þrívídd. Fjallað er um trésmíðateikningar, grunnhönnun, teikniskrift, málreglur og grunnatriði við teikningu sem og útfærslu fyrir handsmíði og vélsmíði á húsgögnum, en einnig um innréttingar, raðsmíði, húshluta og milliveggi o.fl. Auk þess er í bókinni margvíslegt myndefni fyrir trésmiði og verkefnabanki fyrir nemendur.
316 bls., 2010, ISBN 9789979672531
Verð: 6425 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
ef þið viljið panta bókina.
Bókin hentar bæði til kennslu í iðn- og fjölbrautaskólum og fyrir atvinnulífið. Hana má líka nota til að rifja upp og þjálfa kunnáttu í tækniskólum og í mastersnámi. Auk þess ætti bókin að gagnast þeim sem búa sig undir smíðanám upp á eigin spýtur en einnig þeim fjölmörgu sem leita svara við spurningum um hönnun og útfærslu smiðisgripa í sínu starfi.
|