topleft
topright
Sjálfstjórn og heilsa Print Senda

Höfundar: Jóhann Ingi Gunnarsson, Bragi Sæmundsson og Sæmundur Hafsteinsson

 

Góð heilsa er verðmæti sem unnt er að varðveita og ávaxta á ýmsa vegu. Flestir vita að hreyfing, hollur matur og andlegt jafnvægi gegna þar mikilvægu hlutverki. En stundum er ekki nóg að vita hvaða þarf að gera til að ná árangri. Oft skortir viljastyrk til að standast freistingar, taka upp nýja siði, halda ró sinni og láta ekki koma sér úr jafnvægi.


Þessari bók er ætlað að bæta úr brýnni þörf. Á skýran og einfaldan hátt er lesandanum kennt að þekkja áhrif streitu, auka næmi fyrir eigin líkama og bæta sjálfstjórnina. Í bókinni má m.a. finna leiðbeiningar um slökun, hugþjálfun og hugrækt en einnig aðferðir til að auka sjálfstraust,  tileinka sér jákvæð viðhorf og vinna bug á frestunaráráttu. Þá er fjallað um aðferðir til að hætta að reykja og hvernig unnt er að tileinka sér breyttan og bættan lífsstíl. Hér er á ferðinni ný og aukin útgáfa bókarinnar.

 

151 bls., 2011, ISBN 978-9979-67-292-0

  

Verð: 3.395 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

Efnisyfirlit:

Formáli

Inngangur

 

Streita og heilsa

1. Streita og ofstreita
2. Orsakir ofstreitu
3. Einkenni ofstreitu


Slökun og hugrækt
4. Slökun
5. Hugrækt


Sjálfstraust og samskipti
6. Ákveðni og óákveðni
7. Að auka sjálfstraustið


Heilbrigð sál í hraustum líkama

8. Frestunaráráttan
9. Að hætta reykingum
10. Breyttur lífsstíll

 

 

Iðnmennt SES ▪ Brautarholti 8 ▪ 105 Reykjavík ▪ Sími 517 7200 ▪ Fax 552 6793 ▪ idnu(hjá)idnu.is ▪ www.idnu.is

Ráðgjöf.net - Vefhönnun
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates