topleft
topright
Félagsfræðiveislan Print Senda

Höfundur: Magnús Einarsson

 

Þessi kennslubók er ætluð nemendum í félagsfræði á framhaldsskólastigi. Hún hentar einnig nemendum á fyrsta ári í háskóla svo og hinum almenna lesanda. Grundvallarhugtök félagsfræðinnar eru skýrð og meginsjónarhorn hennar kynnt. Fjallað er um nokkur mikilvæg viðfangsefni félagsfræðinnar. Námsmarkmið og samantekt fylgja hverjum kafla.


344 bls, 2011, ISBN 9789979672760

 

Verð: 5280 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.  ef þið viljið panta bókina.

 

Bókin skiptist í þrjá meginhluta:


I. Félagsfræði sem fræði- og vísindagrein: Mikilvægi hugtaka, félagsfræðilegt innsæi og þróun félagsfræðinnar.
II. Sjónarhorn félagsfræðinnar: Meginsjónarhorn sem kennd 
eru við átök, samskipti og samstöðu (virkni) eru skýrð, ásamt 
sjónarhornum sem kennd eru við póstmódernisma og póst-strúktúralisma.  
III. Félagsfræðileg viðfangsefni. Fjögur mikilvæg undirsvið félagsfræðinnar sem fjalla um frávik og afbrot, menntun, fjölmiðla, heilsu og veikindi eru skýrð og greind í ljósi helstu kenninga og sjónarhorna félagsfræðinnar.

Magnús Einarsson hefur BA-gráðu í þjóðfélagsfræði frá HÍ og kennsluréttindi frá sama skóla. Hann lauk MA-prófi í menningarlegri mannfræði frá Wisconsin-háskóla í Madison árið 1992. 
Í rúma tvo áratugi hefur hann aflað sér víðtækrar kennslureynslu 
á sviði félagsvísinda við ýmsa framhaldsskóla en undanfarin ár kennt við Borgarholtsskóla. Auk þess hefur hann fengist við stundakennslu í heilsufélagsfræði við HÍ.

 

 

Verkefni


 

 

Iðnmennt SES ▪ Brautarholti 8 ▪ 105 Reykjavík ▪ Sími 517 7200 ▪ Fax 552 6793 ▪ idnu(hjá)idnu.is ▪ www.idnu.is

Ráðgjöf.net - Vefhönnun
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates