|
|
Uppeldis- og kennslufræði
|
Litróf kennsluaðferðanna - handbók fyrir kennara og kennaraefni |
|
|
|
Höfundur: Ingvar Sigurgeirsson
Grundvallarrit handa íslenskum grunnskólakennurum og kennaraefnum. Í henni er fjallað, m.a., um fas, framkomu og verklag kennara. Tekið er fyrir eðli og einkenni kennsluaðferða en níu aðalkaflar bókarinnar fjalla sérstaklega um útlistunarkennslu, þulunám og þjálfunaræfingar, verklegar æfingar, umræðu og spurnaraðferðir, innlifunaraðferðir og tjáningu, þrautalausnir, leitaraðferðir, hópvinnubrögð og sjálfstæð, skapandi viðfangsefni. Í bókinni er mikið af gagnlegum ábendingum til kennara um námsefni og fræðilegt efni.
167 bls, 1999, ISBN 9789979672661
Verð: 3.115 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
|
Að mörgu er að hyggja - handbók um undirbúning kennslu |
|
|
|
Höfundur: Ingvar Sigurgeirsson
Handbók um undirbúning kennslu, fyrir kennaraefni og starfandi kennara. Bókinni er einkum ætlað að vekja til umhugsunar um þau fjölmörgu atriði sem huga þarf að þegar kennsla er undirbúin. Fjallað er um mismunandi aðferðir við undirbúning, leiðbeint um framsetningu markmiða, námsmat og val á kennsluaðferðum, námsefni, hjálpargögnum og kennslutækjum. Í bókinni er fjöldi gagnlegra ábendinga um söfn, námsefni, heimildir, vefslóðir og fleira.
128 bls, 1999, ISBN 9789979672678
Verð: 2.975 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
|
Samskipti foreldra og barna - Að ala upp ábyrga æsku |
|
|
|
Höfundur: Dr. Thomas Gordon. Ingi Karl Jóhannesson þýddi.
Í bókinni er mælt með gagnkvæmri virðingu í samskiptum barna og fullorðinna. Bókin kennir jákvæðar aðferðir sem miða að skilningi á milli barna og uppalenda. Þessar aðferðir eru m.a. virk hlustun sem styður við barnið og „ég-boð“ sem fá barnið til að hlusta þegar talað er við það. Við lausn vandamála mælir dr. Gordon með aðferðum sem fela í sér sameiginlega lausn barna og uppalenda þannig að börn læri að bera ábyrgð á eigin hegðun og sýna öðrum tillitssemi. Bókin hefur verið notuð til grundvallar námskeiðum sem sálfræðingarnir Hugo Þórisson og Wilhelm Norðfjörð hafa staðið fyrir á undanförnum árum. Hér birtist bókin í nýjum búningi.
288 bls, 1987, ISBN 9789979672685
Verð: 3.490 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
|
Samskipti kennara og nemenda |
|
|
|
Höfundur: Dr. Thomas Gordon. Ólafur H. Jóhannsson þýddi.
Leiðsögn fyrir kennara í skólum, á heimilum, vinnustöðum og íþróttasvæðum. Höfundur segir: “Kennsla er sammannlegt fyrirbæri, allir kenna. Foreldrar kenna börnum sínum, atvinnurekendur starfsmönnum, þjálfarar kenna leikmönnum, konur kenna eiginmönnum sínum (og gagnkvæmt). — Þessi bók fjallar um það hvernig kennsla getur orðið mun árangursríkari en hún að jafnaði er, hvernig kennsla getur fært þeim sem lærir aukna þekkingu og þroska og jafnframt dregið úr árekstrum og skapað aukinn virkan tíma til kennslu.”
276 bls, 2001, ISBN 9789979672685
Verð: 2.975 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
|
Skóli og skólaforeldrar - ný sýn á samstarfið um nemandann |
|
|
|
Höfundur: Nanna Kristín Christiansen
Þessi bók er skrifuð fyrir grunnskólakennara og foreldra grunnskólabarna í þeim tilgangi að vekja þá til umhugsunar og umræðu um hlutverk sitt og benda á mikilvægi samstarfs foreldra og skóla. Með bókinni er hvatt til þróunar samstarfs í samræmi við þarfir og væntingar samtímans, bent er á mögulegar leiðir, hagnýtar upplýsingar og ráð sem stuðlað geta að árangursríku samstarfi foreldra og kennara (úr inngangi höfundar).
240 bls., endursk. útg. 2011, ISBN 9789979672784
Verð: 4770 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Fjölbreyttar leiðir í námsmati |
|
|
|
Höfundur: Erna Ingibjörg Pálsdóttir
Um er að ræða handbók ætluð skólastjórum, kennurum og öðrum sem áhuga hafa á fjölbreytni í námsmati. Fjallað er um lykilþætti námsmats sem felst einkum í því að íhuga tilgang matsins og ákveða hvað eigi að meta, hvaða matsaðferð henti best, hvernig best sé að miðla upplýsingum og til hverra.
213 bls., 2011, ISBN 9789979672692
Verð: 4440 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Leiktu við mig! |
|
|
|
Höfundur: Robin McClure
Þýð.: Jóhanna Sesselja Erludóttir
Í bókinni eru yfir 300 hugmyndir að leikjum og fjölskyldufjöri sem grípa má til alla daga ársins og við hvaða aðstæður sem er. Bókin er sneisafull af hugmyndum sem þú getur nýtt þér þegar þú vilt föndra með, leika við eða örva tengslamyndun við krílið þitt!
193 bls., 2010, ISBN 978-9979-767-87-9
Lækkað verð: 1.790 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
|
|
Krækjur

Aðildarskólar
Iðnmenntar
|