topleft
topright
Barna- og unglingabækur
Leiðarvísir að unglingsárunum fyrir sniðugar stelpur Print Senda

Höfundur: Anita Ganeri

Þýðandi: Kristín Svava Tómasdóttir

 

Fyrir margar skynsamar stelpur getur kynþroskaskeiðið verið spennandi tími. En hann getur líka verið erfiður og flókinn: blæðingar, strákar, pirrandi foreldrar, brjóst, vinátta, skapsveiflur! Þessi bók hefur að geyma góð ráð um allt sem viðkemur unglingsárunum. Efnið er sett fram á skemmtilegan og lifandi hátt og bent á sniðugar vefsíður til frekari upplýsingar. Hér geta allar skynsamar stúlkur uppgötvað lykilinn að áhyggjulausum kynþroska.

 

95 bls., 2011, ISBN 9789979672944

 

Verð:  kr. 2.640 - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Þankaganga Myslobieg 2 Print Senda

Höfundur: Vala Þórsdóttir og Agnieszka Nowak

 

Súsanna og fjölskylda hennar fara til Póllands í fyrsta sinn síðan þau fluttu til Íslands fyrir sex árum. Sumarleyfið í Gdańsk er ferlega skemmtilegt og Súsanna uppgötvar ansi margt um sjálfa sig, fjölskyldu sína og hitt landið sitt, Pólland. Súsanna kemst að því að hún talar stundum eins og smákrakki á pólsku en stundum eins og gömul kona, og sum orð kann hún bara á öðru tungumálinu. Við dvölina verður hún svolítið ringluð yfir því hvort hún er Íslendingur eða Pólverji, hún upplifir sig nefnilega stundum sem útlending í báðum löndunum. En þegar hún kynnist Sonju, sem er hálfsænsk og hálfpólsk, áttar hún sig á því að það er bara eðlilegt að finnast maður stundum vera útlendingur, sérstaklega þegar maður er hálfútlenskur!

 

Þankaganga Myślobieg 2 – Súsanna í Póllandi er sjálfstætt framhald af Þankaganga Myślobieg sem fékk Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna 2010 í flokki barnabókmennta, Vorvinda, viðurkenningu IBBY á Íslandi og er á heiðurslista alþjóðasamtaka IBBY 2012.

 

 123 bls., 2011, ISBN 9789979672890

 

Verð: 2815 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

Nánar...
 
Þankaganga Myslobieg Print Senda

Höfundur: Vala Þórsdóttir og Agnieszka Nowak

 

Súsanna er 10 ára hálfpólsk og hálfíslensk stelpa. Hún er forvitin, sjálfstæð og eldklár, enda finnur hún áhugaverðar lausnir á þeim vandamálum sem koma upp. Hún er smámælt og þjálfar sig í að finna og búa til S-laus orð og er alltaf með samheitaorðabókina í töskunni. Afi hennar og amma fluttu með henni og foreldrum hennar frá Gdansk í Póllandi. Þau kunna lítið í íslensku og finnst margt skrýtið á Íslandi. Súsanna þarf því oft að túlka fyrir þau og útskýra aðstæður.

 

Bráðsniðug og áhugaverð barnabók sem gefur innsýn í daglegt líf stelpu af blönduðu þjóðerni. Þankaganga Myślobieg er bæði á íslensku og pólsku. Bókin skiptist jafnt mili texta og teikninga sem eru ýmist sögur eða framhald af söguþræðinum.

 

Þankaganga Myślobieg fékk Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna 2010 í flokki barnabókmennta, Vorvinda, viðurkenningu IBBY á Íslandi og er á heiðurslista alþjóðasamtaka IBBY 2012.

 

117 bls., 2011, ISBN 9789979672906

 

Verð: 2815 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

Nánar...
 
Veröldin okkar. Alfræði handa börnum. Print Senda

Höfundur: Angela Wilkes

 

Veröldin okkar er mögnuð bók með miklum upplýsingum um efni sem börn hrífast af. Málefni eru gædd lífi með töfrandi myndefni og textinn settur fram í stuttu og hnitmiðuðu máli. Auðvelt er að leita í bókinni þar sem efnisröðun er afar skýr. Sérstök verkefni, sem börn hafa gaman af, fylgja ýmsum þáttum bókarinnar.

 

320 bls., 2000, ISBN 9789979672708

 

Verð: 4920 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Ég veit af hverju... Trén eru með lauf Print Senda

Höfundur: Andrew Charman

 

Í þessari bók  kemur við sögu fjölskrúðugur hópur iðnaðarmanna, m.a. rafvirkinn Stína stuð og Rabbi hársnyrtir en einnig gullsmiðir, bakarar, bifvélavirkjar o.fl. Fjörleg bók um iðna krakka, ríkulega myndskreytt af höfundi. Ætluð börnum í fyrstu bekkjum grunnskóla.

 

32 bls., 2003, ISBN 9979767200

 

Verð: 2075 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Iðnir krakkar Print Senda

Höfundur: Sigrún Eldjárn

 

Í þessari bók  kemur við sögu fjölskrúðugur hópur iðnaðarmanna, m.a. rafvirkinn Stína stuð og Rabbi hársnyrtir en einnig gullsmiðir, bakarar, bifvélavirkjar o.fl. Fjörleg bók um iðna krakka, ríkulega myndskreytt af höfundi. Ætluð börnum í fyrstu bekkjum grunnskóla.

 

56 bls., 2010, ISBN 9789979672524

 

Lækkað verð: 1.390 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Geitungurinn 1 Print Senda

Höfundar: Árni Árnason og Halldór Baldursson

 

Geitungurinn 1 er fyrsta hefti verkefnabóka handa börnum sem farin eru að sýna áhuga á stöfum og tölum. Í heftinu eru fjölbreytileg verkefni sem miðla börnum tölum og stöfum og bjóða upp á margháttaða en skemmtilega glímu við efnið.

Heftið er samið með það fyrir augum að það veiti góðan undirbúning fyrir lestrarnám og kveiki áhuga barna á lestri. Haft var að leiðarljósi við samningu heftisins að foreldri eða kennari og barn geti átt skemmtilega stund saman yfir því og fái um margt að spjalla.

 

48 bls, 1999, ISBN 9789979672616 

 

Verð: 935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Geitungurinn 2 Print Senda

Höfundar: Árni Árnason og Halldór Baldursson

 

Geitungurinn 2 er annað hefti verkefnabóka sem ætlað er börnum sem farin eru að sýna áhuga á stöfum og orðum. Í heftinu eru litabókarverkefni sem miðla börnum náttúrufræðilegum fróðleik auk þess að bjóða upp á skemmtilega glímu við liti, stafi og orð.

 

32 bls, 1999, ISBN 9789979672623 

 

Verð: 935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Geitungurinn 3 Print Senda

Höfundar: Árni Árnason og Halldór Baldursson

 

Geitungurinn 3 er þriðja hefti verkefnabóka sem ætlaðar eru börnum sem hafa áhuga á að læra að lesa. Fjölbreytilegt viðfangsefni heftisins bjóða upp á skemmtilega glímu við stafi, tölur og orð.

 

48 bls, 2000, ISBN 9789979672630 

 

Verð: 935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Geitungurinn 4 Print Senda

Höfundar: Árni Árnason og Halldór Baldursson

 

Geitungurinn 4 er fjórða hefti verkefnabókanna vinsælu sem ætlaðar eru börnum sem hafa áhuga á að læra að lesa. Efni heftisins er fjölbreytt og býður lesandanum upp á viðfangsefni sem gera lestrarnámið að sannri skemmtun. Bókin er byggð upp þannig að hún myndi sem beinast framhald þriðja heftis Geitungsins

 

48 bls, 2002, ISBN 9789979672647 

 

Verð: 935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Ferðageitungurinn Print Senda

Höfundar: Árni Árnason og Halldór Baldursson

 

Ferðageitungurinn er ætlaður börnum sem eru á ferðalagi um Ísland. Efni heftisins er fjölbreytt og miðast við að það henti börnum á öllum aldri. Heftið er tilvalið að taka með í sumarferðalagið, hafa það uppi við í bílnum, í sumarbústaðnum eða til skemmtunar heimafyrir.

48 bls, 2002, ISBN 9789979672647 

 

Verð: 935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Talnageitungurinn Print Senda

Höfundur : Árni Árnason

 

Talnageitungurinn er sjötta hefti verkefnabókanna vinsælu sem ætlaðar eru börnum sem áhuga hafa á að læra að lesa og reikna. Eins og heiti heftisins gefur til kynna fjallar það einkum um tölur og einfaldan reikning. Heftinu er ætlað að gefa góðan undirbúning fyrir stærðfræðinám barna. Í því eru lögð inn grundvallarhugtök í stærðfræði og veittar æfingar í að telja, þekkja talnagildi auk þess að lesa tölur og skrifa. Það býður upp á fjölbreytileg og skemmtileg viðfangsefni og hentar vel sem framhald af Geitungi 1 jafnframt því að vera stuðningur við Geitung 3 og 4.

 

48 bls, 2004, ISBN 9789979672654 

 

Verð: 935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Þrautageitungurinn Print Senda

Höfundur: Árni Árnason og Halldór Baldursson

 

Geitungurinn er saminn með það að markmiði að gera lestrarnám og lestrarþjálfun barna að skemmtilegu viðfangsefni og auka áhuga þeirra á lestri texta og talna, skrift og reikningi. Þrautageitungurinn er saminn í þessum anda og hæfir börnum sem farin eru að lesa og skrifa og hafa gaman af glímunni við stafi, orð og tölur.

 

48 bls, 2010, ISBN 9789979672586 

 

Verð: 935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Krossgátugeitungurinn Print Senda

Höfundur: Árni Árnason

Myndskreyting: Halldór Baldursson

 

Geitungurinn er saminn með það að markmiði að gera lestrarnám og lestrarþjálfun barna að skemmtilegu viðfangsefni og auka áhuga þeirra á lestri texta og talna, skrift og reikningi. Krossgátugeitungurinn er saminn í þessum anda og hæfir börnum sem farin eru að lesa og skrifa og hafa gaman af glímunni við stafi og orð.

 

24 bls, 2011, ISBN 978-9979-67-293-7 

 

Verð: 935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Óvættaför 1 - Elddrekinn Fernó Print Senda

Höfundur: Adam Blade

Þýðandi: Árni Árnason

 

Þetta er fyrsta bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu:

 

Illviljaður töframaður hefur lagt ill álög á verndarvætti Avantíu. Aðeins sönn hetja getur frelsað þá úr álögunum og hindrað að þeir leggi landið í auðn. Er Tom hetjan sem Avantía hefur beðið eftir? Vertu með í för Toms gegn elddrekanum...

 

Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.

 

120 bls, 2007, ISBN 9789979767558

 

Verð: 2535 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Óvættaför 3 - Bergrisinn Arkta Print Senda

Höfundur: Adam Blade

Þýðandi: Árni Árnason

 

Þetta er þriðja bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu:

 

Avantíu er ógnað af fornum verndarvættum sínum sem illviljaður töframaður hefur lagt vond álög á. Tom verður að berjast við bergrisann Arkta til að bjarga landi sínu og þjóð. Tekst honum það?

 

Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.

 

128 bls, 2008, ISBN 9789979767688

 

Verð: 2535 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Óvættaför 4 - Kentárinn Tagus Print Senda

Höfundur: Adam Blade

Þýðandi: Árni Árnason

 

Þetta er fjórða bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu:

 

Avantíu er ógnað af fornum verndarvættum sínum sem illviljaður töframaður hefur lagt vond álög á. Tom verður að berjast við kentárinn Tagus til að bjarga landi sínu og þjóð. Tekst honum það?

 

Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.

 

128 bls, 2009, ISBN 9789979767763

 

Lækkað verð: 1.690 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Óvættaför 5 - Hrímþursinn Nanúk Print Senda

Höfundur: Adam Blade

Þýðandi: Árni Árnason

 

Þetta er fimmta bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu:

 

Avantíu er ógnað af fornum verndarvættum sínum sem illviljaður töframaður hefur lagt vond álög á. Tom verður að berjast við hrímþursinn Nanúk til að bjarga landi sínu og þjóð. Tekst honum það?

 

Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.

 

130 bls, 2010, ISBN 9789979672593

 

Lækkað verð: 1.690 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Óvættaför 6 - Eldfuglinn Epos Print Senda

Höfundur: Adam Blade

Þýðandi: Árni Árnason

 

Þetta er sjötta bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu:

 

Avantíu er ógnað af fornum verndarvættum sínum sem illviljaður töframaður hefur lagt vond álög á. Tom verður að berjast við hrímþursinn Nanúk til að bjarga landi sínu og þjóð. Tekst honum það?

 

Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.

 

124 bls., 2011, ISBN 978-9979-67-287-6

 

Verð: 2.450 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Óvættaför 7 - Ófreskjusmokkfiskurinn Sepja Print Senda

Höfundur: Adam Blade

Þýðandi: Árni Árnason

 

Þetta er sjöunda bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu, en jafnframt fyrsta bókin af sex sem fjalla um Gullnu brynjuna.

 

Galdramaðurinn vondi, Malvel, stal gullnu töfrabrynjunni og dreifði hlutum hennar víðs vegar um Avantíu. Tom hefur heitið því að finna alla hluta brynjunnar - en þeirra er gætt af sex hryllilegum óvættum. Tekst Tom að sigra í neðansjávarbardaga við ófreskjusmokkfiskinn Sepju? Leggur þú í óvættaförina?

 

Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.

 

128 bls., 2011, ISBN 978-9979-67-288-3

 

Verð: 2.450 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Óvættaför 8 - Ofurapinn Klói Print Senda

Höfundur: Adam Blade

Þýðandi: Árni Árnason

 

Þetta er áttunda bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu, en jafnframt önnur bókin af sex sem fjalla um Gullnu brynjuna.  

 

Galdramaðurinn vondi, Malvel, stal gullnu töfrabrynjunni og dreifði hlutum hennar víðs vegar um Avantíu. Tom hefur heitið því að finna alla hluta brynjunnar - en þeirra er gætt af sex hryllilegum óvættum. Tekst Tom að sigra ofurapann Klóa djúpt inni í Dimmaskógi? Leggur þú í óvættaförina?

 

Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.

 

128 bls., 2012, ISBN 978-9979-67-303-3

 

Verð: 2.450 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

Iðnmennt SES ▪ Brautarholti 8 ▪ 105 Reykjavík ▪ Sími 517 7200 ▪ Fax 552 6793 ▪ idnu(hjá)idnu.is ▪ www.idnu.is

Ráðgjöf.net - Vefhönnun
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates