topleft
topright
Íslenska
Á leið út í lífið - textar f. erl. nem. um nám Print Senda

Höfundur : Guðlaug Kjartansdóttir

Eins og undirtitill bókarinnar gefur til kynna er hér um að ræða kennslubók í íslensku fyrir erlenda nemendur. Í textum bókarinnar er kynnt það fjölbreytta starfsnám sem nemendum stendur til boða í íslenskum skólum. Hverjum kafla fylgja verkefnasíður. Eftir Guðlaugu Kjartansdóttur hefur áður komið út bókin Allt annað mál - íslenska fyrir útlendinga.



Upplestur bókarinnar 

 

130 bls, 2010, ISBN 9979672500

 

Verð:3130 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Að enduðum löngum degi, Í fásinninu og fl. Print Senda

Höfundur : Indriði G. Þorsteinsson
Ólafur Víðir Björnsson tók saman

Í þessu hefti eru þrjár smásögur eftir Indriða G. Þorsteinsson auk formála og skýringa. Bókmenntahefti sem þessi eru einkum ætluð sem ítarefni við íslenskunám á framhaldsskólastigi.

 

44 bls, 1994, ISBN 9979830727

 

Verð: 610 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Allt annað mál - Íslenska fyrir útlendinga Print Senda

Höfundur : Guðlaug Kjartansdóttir

Kveikjan að þessari kennslubók var mjög brýn þörf mín og nemenda minna fyrir hentugt kennsluefni í íslensku fyrir útlendinga sem komnir eru á 4. eða 5. önn í framhaldsskóla. Ætlunin með þessum textum er einkum að bæta orðaforða nemendanna og einnig að veita þeim ofurlitla innsýn í líf dæmigerðra Íslendinga.

95 bls, 2008, ISBN 9789979672296

 

Verð: 2390 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Bárðar saga Snæfellsáss Print Senda

Bjarki Bjarnason tók saman

Bjarki Bjarnason bjó til prentunar. Skólaútgáfa með orðskýringum, verkefnum og ítarlegri örnefnaskrá. Bókinni fylgir litprentað kort af sögusviði.

 

104 bls, 1999, ISBN 9979670398

 

Verð: 2325 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Bókastoð - Ágrip af íslenskri bókmenntasögu Print Senda

Höfundar: Kristján Eiríksson og Sigurborg Hilmarsdóttir

Það er reynsla margra kennara að lesendur verði gjarnan áttavilltir í miklum staðreyndaskógi þar sem þeir þekkja fátt kennileita. Því er í þessu ágripi fyrst og fremst reynt að draga meginlínur í stuttu máli en þó sagt meira af sumum þeim verkum og höfundum sem venja er að fjalla um í framhaldsskólum. Ekki er hér heldur hirt um að rekja kenningar um bókmenntir og lítið sem ekkert fjallað um æviatriði höfunda. Þeir kennarar sem láta nemendur lesa þessa bók geta því bætt slíkum upplýsingum við og öðru því sem þeir telja miklu varða.

 

119 bls, 1999, ISBN 9979670169

 

Verð: 2940 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Bókmenntagreining Print Senda

Höfundur: Eiríkur G. Guðmundsson

Í þessu kveri eru útskýrð algengustu hugtök sem notuð eru við kennslu bókmennta og greiningu þeirra. Eiríkur G. Guðmundsson, fyrrv. skólameistari, hefur um árabil kennt íslenskar bókmenntir í framhaldsskóla og í tengslum við þá kennslu tók hann saman þetta efni fyrir nemendur sína.

 

26 bls, 2001, ISBN 9979670630

 

Verð: 555 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Brennu-Njáls saga Print Senda

Jón Böðvarsson tók saman

Útgáfa þessi er byggð á eldri útgáfu af Brennu-Njáls sögu sem Jón Böðvarsson bjó til prentunar fyrir röskum þremur áratugum. Fremst er inngangur ritaður af Jóni og þá yfirlit um ættir og vensl helstu sögupersóna. Orðskýringar eru neðanmáls og hefur verið aukið við þær frá fyrri útgáfu auk þess sem köflum hefur verið valið heiti. Aftast eru verkefni og nafnaskrá.

Bókinni fylgir geisladiskur með ljósmyndum, kortum og öðru myndefni af sögusviði.

 

343 bls., 2002, ISBN 9789979672265

 

Tilboðsverð: 1.295 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Bögubókin Print Senda

Höfundur: Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Bögubókin er kennslubók í bragfræði. Bókin skiptist í 15 kafla og 14 fyrstu fjalla um ferskeytluna og það sem kunna þarf til að koma henni rétt saman. Í 15. kaflanum eru dæmi um aðra bragarhætti. Hver vísa í bókinni er ort sérstaklega til að skýra það atriði bragfræðinnar sem er til umfjöllunar hverju sinni. Allir bragarhættir, sem fjallað er um eða ort undir í bókinni, eru rímnahættir.

 

64 bls, 1990, ISBN 9979806192

 

Verð: 1495 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Bögubósi Print Senda

Höfundur : Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Bögubósi er verkefnabók, fylgirit Bögubókarinnar og er ætlað til stuðnings við kennslu hennar. Verkefnin eru margvísleg, t.d. fyrripartar, ætlaðir nemendum til að botna, orð til að raða upp í vísur, leiðréttingarverkefni og vísur, sem í vantar eina línu. Kaflaskipting Bögubósa samsvarar að öllu leyti kaflaskiptingu Bögubókarinnar.

 

44 bls, 1991, ISBN 9979830301

 

Verð: 840 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Edda - Prologus, Gylfag. og frásagnark. Skáldskaparmála Print Senda

Gunnar Skarphéðinsson bjó til prentunar


Þetta er ný og endurskoðuð skólaútgáfa Snorra-Eddu. Hér er Prologus verksins hafður með auk Gylfaginningar og lengstu frásagnarkafla Skáldskaparmála. Þá fylgja örfáir kaflar úr Ynglingasögu með í viðauka. Textinn er í öllum aðalatriðum færður til nútímastafsetningar og fylgja skýringar bundnu sem óbundnu máli. Í bókinni eru vísnaskýringar og skrár auk nýs eftirmála um Snorra Sturluson og verk hans.

 

 206 bls, 2011, ISBN 978-9979-67-295-1

 

Verð: 3.630 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Eiríks saga víðförla Print Senda

Ragnar Ingi Aðalsteinsson tók saman

Skólaútgáfa með skýringum og verkefnum. Með þessari útgáfu fylgir bæði ítarefnishefti, þar sem valdir hafa verið saman textar, sem tengjast Eiríks sögu á einhvern hátt, og kennarahefti með kennsluleiðbeiningum, sem Ragnar Ingi tók saman.

 

62 bls, 1993, ISBN 9979830603

 

Verð: 1050 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Eiríks saga víðförla - Ítarefnishefti Print Senda

Ragnar Ingi Aðalsteinsson tók saman

Ítarefni við Eiríks sögu víðförla.

 

92 bls, 1993, ISBN 9979830611

 

Verð:935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Eiríks saga víðförla - Kennarahefti Print Senda

Ragnar Ingi Aðalsteinsson tók saman

Kennsluleiðbeiningar fyrir Eiríks sögu víðförla.

 

40 bls, 1993, ISBN 997983062X

 

Verð: 480 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Fjölsvinnur - kennslubók í textaritun Print Senda

Höfundar : Dóróthea J. Siglaugsdóttir og Guðlaugur R. Guðmundsson

Kennslubók þessi í textaritun og meðferð texta er samin með hliðsjón af námskrá menntamálaráðuneytisins fyrir nám í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum sem gefin var út árið 2001. Boðið var fyrst upp á þetta nám í nokkrum framhaldsskólum skólaárið 2000-2001 og hafa kennarar fram að þessu orðið að útbúa námsefnið að miklu leyti sjálfir auk þess að styðjast við ýmsar handbækur um ritun og frágang texta. Efni bókarinnar er hluti af grunnnámi á upplýsinga- og fjölmiðlabraut.

 

117 bls, 2003, ISBN 9979671173

 

Verð: 3045 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma (517 7200) eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Gísla saga Súrssonar Print Senda

Jóhanna Sveinsdóttir tók saman

Skólaútgáfa með skýringum og verkefnum ásamt litprentuðu korti af sögusviði. Myndskreyting eftir Hauk Halldórsson.

 

186 bls, 1985, ISBN 9979806451

 

Verð: 2035 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Gullvör 1 Print Senda

Höfundur: Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Málfræði fyrir 8. bekk grunnskóla. Bókin skiptist í 7 kafla: 1. Orðin eru ekki öll þar sem þau eru séð, 2. Orð skiptast í þrjá aðalflokka, 3. Fallorð, 4. Sagnorð, 5. Orðhlutar, 6. Setning - málsgrein - efnisgreinar - greinarmerki, 7. Stafir - hljóð.

23 bls., 2001, ISBN 9979936118

 

Verð: 1310 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Gullvör 1 - verkefnabók Print Senda

Höfundur: Gunnar Finnson


Bók þessi er sérstaklega samin sem verkefnabók með Gullvöru 1 eftir Ragna Inga Aðalsteinsson.

25 bls., 2008, ISBN 978-9979-797-33-3

 

Verð: 625 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Gullvör 2 Print Senda

Höfundur: Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Málfræði fyrir 9. bekk grunnskóla. Bókin skiptist í 13 kafla: 1. Orðflokkar, 2. Fallorð, 3. Greinir, 4. Nafnorð, 5. Lýsingarorð, 6. Töluorð, 7. Fornöfn, 8. Sagnorð, 9. Full greining, 10. Smáorð, 11. Hljóðbreytingar, 12. Merkingarfræði, 13. Hvers vegna lærum við málfræði?


44 bls., 2001, ISBN 9979-9361-2-6

 

Verð: 1310 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Gullvör 2 - verkefnabók Print Senda

Höfundur: Gunnar Finnson


Bók þessi er sérstaklega samin sem verkefnabók með Gullvöru 2 eftir Ragna Inga Aðalsteinsson.

48 bls., 2008, ISBN 978-9979-797-34-0

 

Verð: 975 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Gullvör 3 Print Senda

Höfundur: Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Málfræði fyrir 10. bekk grunnskóla. Bókin skiptist í 17 kafla: 1. Orðflokkar, 2. Fallorð, 3. Greinir, 4. Nafnorð, 5. Lýsingarorð, 6. Töluorð, 7. Fornöfn, 8. Sagnorð, 9. Smáorð, 10. Hljóðbreytingar, 11. Orðmyndun, 12. Setningarhlutagreining, 13. Málsgrein, setning, efnisgrein, greinarmerki, 14. Bein/óbein ræða, 15. Hljóðfræði, 16. Staðbundinn framburður, 17. Merkingarfræði,


44 bls., 2001, ISBN 9979-9361-3-4

 

Verð: 1310 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Gullvör 3 - verkefnabók Print Senda

Höfundur: Gunnar Finnson


Bók þessi er sérstaklega samin sem verkefnabók með Gullvöru 3 eftir Ragna Inga Aðalsteinsson.

36 bls., 2008, ISBN 978-9979-797-35-7

 

Verð: 820 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Gunnlaugs saga ormstungu Print Senda

Eiríkur Guðmundsson, Jón Árni Friðjónsson og Steingrímur Bragason tóku saman

Skólaútgáfa með skýringum og verkefnum ásamt litprentuðu korti af sögusviði. Myndskreyting eftir Hauk Halldórsson.

 

130 bls, 1986, ISBN 9979806494

 

Verð: 2000 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Gunnlaugs saga ormstungu Print Senda

Ragnar Ingi Aðalsteinsson annaðist útgáfuna.

Útgáfa fyrir nemendur í grunnskóla með ítarlegum orðskýringum og verkefnum.

151 bls., 2009, ISBN 9789979797692

 

Verð: 2000 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Hrafnkels saga Freysgoða Print Senda

Óskar Halldórsson tók saman

Skólaútgáfa með skýringum og verkefnum. Þetta er 7. prentun bókarinnar en hún kom áður út hjá IÐUNNI.

 

61 bls., 1999, ISBN 9979670088

 

Verð: 1175 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

 
Hrafnkels saga Freysgoða Print Senda

Ragnar Ingi Aðalsteinsson tók saman

Sú útgáfa sem hér lítur dagsins ljós er einkum miðuð við þarfir yngra fólks. Orðskýringar eru margar og nákvæmar og verkefni sem fylgja eiga að vekja til umhugsunar og skýra atburðarás og athafnir sögupersóna.


114 bls., 2000, ISBN 9979670657

 

Verð: 2350 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

Nánar...
 
Hrafnkels saga Freysgoða - kennarahandbók Print Senda

Höfundur : Ragnar Ingi Aðalsteinsson
 

Úr formála höfundar:
„Kennarahandbók sú sem hér lítur dagsins ljós er samin til leiðbeiningar með skólaútgáfu minni á Hrafnkels sögu Freysgoða. Bókin skiptist í fjóra kafla. Í þeim fyrsta er rætt um bókmenntakennslu á síðari hluta 20. aldar, þ.e. frá því að fyrstu námskrár fyrir skyldunámsstigið litu dagsins ljós á fimmta áratugnum. Rakin er í stuttu máli sú þróun sem átt hefur sér stað í bókmenntakennslu á þessu tímabili og skoðaðar þær námskrár sem fræðsluyfirvöld hafa gefið út á hverjum tíma en jafnframt litið út fyrir landsteinana til samanburðar. Þá er vikið að hlut Íslendingasagna. Síðan er greint frá hugmyndum mætra manna um kynningu og lestur fornsagnanna og hugað að „textatengslum“. Þar eru skoðaðar athyglisverðar greinar um tengsl okkar við menningararfinn og síðan m.a. litið á rannsóknir um tengsl lesandans við textann.

79 bls, 2000, ISBN 9979670665

 

Verð: 1290kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Hrafnkels saga Freysgoða - kort og gönguleiðir Print Senda

Dagný Indriðadóttir tók saman

Í þessari útgáfu Hrafnkels sögu er fléttað saman sögutexta og ýmsum áhugaverðum upplýsingum sem gerir ferðalag á söguslóðir bæði auðvelt og spennandi. Auk sögutextans sjálfs, sem er myndskreyttur af Pétri Behrens, er í bókinni að finna ítarefni eftir Dagnýju Indriðadóttur sem varpar ljósi á samfélagsmynd sögutímans. Þá hafa verið unnin ítarleg kort sem gera lesendum og ferðalöngum kleift að glöggva sig nánar á staðháttum, hvar söguskilti og gönguleiðir er að finna og hvernig best megi haga ferðum með tilliti til áhuga, getu og langana þeirra sem leggja upp í ferð um söguslóðirnar.

 

104 bls, 2009, ISBN 9789979672418

 

Verð: 3005 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.  

 
Ísl. bókm. til 1550 - Saga þeirra í ágripi Print Senda

Höfundar : Baldur Jónsson, Indriði Gíslason og Ingólfur Pálmason

Þessi bók kom fyrst út árið 1976 og hér er um endurútgáfu að ræða. Eins og höfundar greina frá í aðfaraorðum er ritið „hugsað sem rammi eða beinagrind þar sem sögð eru stutt deili á helstu bókmenntagreinum tímabilsins“. Bókin er að mestu efnislega óbreytt frá fyrri útgáfu, en hefur verið aukin af myndefni og ritaskrám.

 

123 bls, 1997, ISBN 9979831790

 

Verð: 2705 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Íslensk málfræði handa grunn- og framhaldssk. Print Senda

Höfundur : Björn Guðfinnsson

Kennslubók í íslenskri málfræði sem hefur verið kennd í grunn- og framhaldsskólum. Þetta er 5. útgáfa bókarinnar frá árinu 1958 (17. prentun). Eiríkur Hreinn Finnbogason annaðist útgáfuna.

 

118 bls, 1999, ISBN 9979670118

 

verð: 1120 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Íslenska vísar veginn - ísl. sem annað tungumál Print Senda

Höfundur : Þórunn Halla Guðlaugsdóttir

Þetta er kennslubók í íslensku fyrir nemendur af erlendu þjóðerni sem búsettir eru á Íslandi og einnig íslenska nemendur sem ekki hafa alist upp í íslensku málumhverfi.
Með námsefninu er leitast við að þjálfa nemendur í íslensku ásamt því að efla menningarfærni sem jafnframt stuðli að félagslegri vellíðan nemenda.

 

 

139 bls, 2009, ISBN 9789979672425

 

Verð: 5400 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina

Nánar...
 
Íslenskar bókmenntir 1550-1900 Print Senda

Höfundur: Kristinn Kristjánsson

Þetta er íslensk bókmenntasaga frá siðaskiptum til loka 19. aldar þar sem meginþættir íslenskra bókmennta eru útskýrðir. Henni er fyrst og fremst ætlað að vera „hjálpartæki fyrir nemendur svo að þeir skilji betur það hugmyndalega umhverfi sem bókmenntir verða til í“. Til að auðvelda lesanda þessi tengsl við fortíðina fléttar höfundurinn margvíslegu þjóðsagnaefni inn í frásögn sína í bland við aðra bókmenntatexta tímabilsins.


133 bls., 1996, ISBN 9979831529

 

Verð: 3420 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

Nánar...
 
Íslenskt mál í daglegu starfi Print Senda

Höfundur : Guðlaugur R. Guðmundsson

Bókin er ætluð nemendum sem hafa lokið grunnskólaprófi og einnig skylduáföngum í íslensku fyrir sveinspróf. Reynt er að koma á móts við þær kröfur sem settar eru í áfangalýsingu fyrir ÍSL242, sem eru að nemendur fái aukna tilfinningu fyrir blæbrigðum íslensks ritmáls og möguleikum í notkun þess. Þeir þjálfist í ritun í mismunandi tilgangi, æfist í að setja fram mál sitt á skýran og lipran hátt með málsniði sem hæfir hverju tilefni og læri að nýta sér tiltæk hjálpargögn.

 

100 bls, 1999, ISBN 9979670177

 

Verð: 2550 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Kjalnesinga saga Print Senda

Jón Böðvarsson tók saman

Skólaútgáfa með skýringum og verkefnum ásamt litprentuðu korti af sögusviði. Myndskreyting eftir Hauk Halldórsson.

 

120 bls., 1985, ISBN 9979806672

 

Verð: 2135 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina

 
Leiðslubók - Stuttur leiðarv. um ísl. miðaldabókm. Print Senda

Höfundur: Jón Árni Friðjónsson

Markmiðið með leiðarvísi sem þessum er að skýra í stuttu máli uppruna og einkenni íslenskra fornrita og lýsa þeim aðstæðum þar sem þau urðu til. Að baki liggur sú hugsun að nemendum „sé hollara að lesa bókmenntir heldur en skrif um bókmenntir“. Rit sem þetta ætti því að nýtast vel framhaldsskólanemum eða öðrum þeim sem fást við fornritalestur, en þurfa á að að halda stuttum inngangi um sögulegt samhengi.


78 bls., 1997, ISBN 9979831782

 

Verð: 1440 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Lestu betur - Leskaflar Print Senda

Höfundar : Fjölnir Ásbjörnsson og Guðni Kolbeinsson

Markmiðið með ritinu Lestu betur er að þjálfa lestur og minni til þess að bóklestur gangi skjótar og verði árangursríkari. Bækurnar eru tvær: Leskaflar og Vinnubók. Í 24 fróðlegum og skemmtilegum köflum reynir lesandinn sífellt að auka leshraðann; og fjölbreytileg verkefni, sem fylgja, stuðla að því að auka einbeitingu hans og minni. Höfundar verksins eru báðir kennarar og hafa þjálfað fólk í lestri á fjölmörgum námskeiðum undanfarin ár með feikigóðum árangri. Bókunum, sem komu fyrst út 1994, fylgir kennaramappa með glærum.

 

227 bls, 1994, ISBN 9979830867

 

Verð: 3955 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Lestu betur - Vinnubók Print Senda

Höfundar : Fjölnir Ásbjörnsson og Guðni Kolbeinsson

Markmiðið með ritinu Lestu betur er að þjálfa lestur og minni til þess að bóklestur gangi skjótar og verði árangursríkari. Bækurnar eru tvær: Leskaflar og Vinnubók. í 24 fróðlegum og skemmtilegum köflum reynir lesandinn sífellt að auka leshraðann; og fjölbreytileg verkefni, sem fylgja, stuðla að því að auka einbeitingu hans og minni.

 

73 bls, 1999, ISBN 9979670142

 

Verð: 2905 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina

 
Lestu nú - Leskaflar Print Senda

Höfundar : Fjölnir Ásbjörnsson og Guðni Kolbeinsson

Kennsluefni hliðstætt Lestu betur bókunum til að þjálfa lestur og minni, en einkum ætlað fyrir grunnskóla.

 

153 bls, 1997, ISBN 9979831855

 

Verð: 3310 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Lestu nú - Vinnubók Print Senda

Höfundar : Fjölnir Ásbjörnsson og Guðni Kolbeinsson

Kennsluefni hliðstætt Lestu betur bókunum til að þjálfa lestur og minni, en einkum ætlað fyrir grunnskóla.

 

160 bls, 1997, ISBN 9979831863

 

Verð: 2180 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Ljóð í tíunda Print Senda

Höfundur : Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Þetta kver er eins og nafnið bendir til sniðið fyrir síðasta bekk grunnskólans. Það skiptist í tólf kafla og fjalla fyrstu sjö þeirra um bragfræði. Í næstu köflum er vikið að bragarháttum, hefðbundnum ljóðum og óbundnum, boðskap ljóða og innihaldi, myndmáli og stílbrögðum. Lokakaflinn er greiningarlykill fyrir nemendur til að vinna eftir þegar þeir greina ljóð. Sá sem kann þetta kver á að vera fær um að leysa með sóma ljóða- og bragfræðiþátt samræmdu pófanna.

 

58 bls, 1998, ISBN 9979831952

 

Verð: 1165 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Málefli - Leskaflar og verkefni Print Senda

Höfundar: Halldóra S. Sigurðardóttir, Steinunn Stefánsdóttir, Svandís Svavarsdóttir og Þórunn Blöndal

Stuðst var við þekkt kennsluefni í ensku, SRA-verkefnið („ensku kassana“). Lítil vinnubók hefur verið gefin út í tengslum við Málefli.

 

1993, ISBN 9979806508

 

Verð: 3250 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

 
 
Málefli - Vinnubók Print Senda

Höfundar: Halldóra S. Sigurðardóttir, Steinunn Stefánsdóttir, Svandís Svavarsdóttir og Þórunn Blöndal

Lítil vinnubók í tengslum við Málefli - Leskaflar og verkefni.

 

47 bls., 1993, ISBN 9979830689

 

Verð: 945 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Málfræði og stafsetning Print Senda

Höfundar : Eiríkur Páll Eiríksson og Guðni Kolbeinsson

Í framhaldsskóla

 

138 bls, 1990, ISBN 9979806753

 

verð: 2620 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Máltækni Print Senda

Höfundur: Kristján Eiríksson

Þessi bók er eins konar handbók til leiðbeiningar um málbeitingu. Í henni er drepið á ýmis álitamál og atriði sem skoðanir eru skiptar um og ætti því að örva lesendur til að hugsa frekar um íslenska málstefnu og þróun íslenskrar tungu. Þá eru í ritinu fjöldi beygingardæma og skrár um ýmis málfarsleg atriði.


112 bls., 1990, ISBN 9979806761

 

Verð: 2145 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Málþekking - Málfræði fyrir fornám og hægferðir. Print Senda

Höfundar: Helga Sigurjónsdóttir og Ingibjörg Sigtryggsdóttir

Þessi bók er einkum ætluð þeim nemendum í framhaldsskóla sem hafa ekki náð nógu góðu valdi á íslenskri málfræði. Hún er stutt yfirlit yfir orðflokkana og tekur á nokkrum þáttum málnotkunar. Í upphafi hvers kafla eru sett fram skýr kunnáttumarkmið og kaflanum lýkur á nokkrum spurningum sem vísa til markmiðanna.

 

69 bls., 1996, ISBN 9979831871

 

Verð: 1750 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Orðagaldur – kennslub. í ísl. f. framhaldssk. Print Senda

Höfundar: Brynja Baldursdóttir og Hallfríður Ingimundardóttir

Efni þessarar bókar er í samræmi við nýja námskrá menntamálaráðuneytisins og er ætlað til kennslu í byrjendaáföngum í íslensku á framhaldsskólastigi.

 

256 bls., 2003, ISBN 9789979671008

 

Verð: 4575 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Setningafræði handa framhaldsskólum Print Senda

Höfundur: Baldur Ragnarsson

Bók þessi er ætluð nemendum í framhaldsskólum þar sem nokkur áhersla er lögð á kennslu í setningafræði. Bókin er þannig byggð upp að í fyrri hluta hennar er fjallað um setningar en í þeim síðari um setningarliði. Hvorum hluta er skipt í kafla og sumum þeirra í undirkafla og fylgir eitt verkefni hverjum. Í bókarlok eru svo almenn verkefni.

 

72 bls. Ný og endursk. útg. 2004. ISBN 9979671521

 

Verð: 1720 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Sjávarljóð Print Senda

Eysteinn Sigurðsson tók saman

Í þessu hefti er að finna sýnishorn íslenskra ljóða um sjó og siglingar auk formála og skýringa. Bókmenntahefti sem þessi eru einkum ætluð sem ítarefni við íslenskunám á framhaldsskólastigi.

 

54 bls, 1994, ISBN 997983076X

 

Verð: 910 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Skugga-Sveinn Print Senda

Höfundur: Matthías Jochumsson

Þuríður Jóhannsdóttir bjó til prentunar, ritaði formála og samdi skýringar. Í bókarlok fylgja hugmyndir að verkefnum.

 

141 bls., 1997, ISBN 9979831685

 

Verð: 1900 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Skýr. við Gylfag. og goðs. Skáldsk.m. Snorra-Eddu Print Senda

Höfundur : Baldur Ragnarsson

Skýringar þessar við Gylfaginningu og goðsagnakafla Skáldskaparmála Snorra-Eddu eru að stofni til skýringar við sama efni sem höfundur tók saman fyrir nokkrum árum til notkunar við kennslu í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þær skýringar hefur hann nú aukið með ýmsum hætti og bætt við kafla um dróttkvæði og kenningar.
 

79 bls, 2000, ISBN 9979670606

 

Verð: 2030kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Slitur úr íslenskri bókmenntasögu 1550-1918 Print Senda

Höfundur: Viðar Hreinsson

Eins og nafn bókarinnar gefur til kynna er hér stiklað á stóru í bókmenntasögu Íslendinga frá siðaskiptum til upphafs 20. aldar. Frásögnin fylgir hefðbundinni tímabilaskiptingu, en höfuðáhersla er lögð á bókmennta- og menningarsögulegt samhengi og þróun. Öðru fremur fjallar höfundur ítarlega um bókmenntastarfsemi lærdómsaldar (1550-1770), sem hann telur að hafi verið vanrækt „meira en hún verðskuldar“. Frásögninni fylgja valdir bókmenntatextar af margvíslegu tagi.

 

127 bls., 1997, ISBN 9979831537

 

Verð: 3420 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta. bókina.

Nánar...
 
Stafsetning Print Senda

Höfundur : Eiríkur Páll Eiríksson

Þessi bók er ætluð til kennslu og upprifjunar í grunnáföngum framhaldsskólanna og þá fyrst og fremst þeim nemendum sem átt hafa í einhverjum erfiðleikum með stafsetningu í grunnskóla. Fjölmörg verkefni eru í bókinni til þess að þjálfa nemendur.

 

77 bls, 1997, ISBN 9979831774

 

 

Verð:1800 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Stafsetning Print Senda

Höfundur : Gunnar Finnbogason

Þetta kver hefur að geyma nokkrar stafsetningarreglur og æfingar. Kom fyrst út árið 1980.

 

24 bls, 1994, ISBN 9979806745

 

Verð: 705 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Stafsetning - Kennslubók fyrir heimili og skóla Print Senda

Höfundur: Helga Sigurjónsdóttir

Kennslufræðin sem lögð er til grundvallar þessari bók er skýr framsetning reglna, mikil endurtekning, stöðug upprifjun og reglulegar mælingar á námsárangri. Hún hefur einkum verið notuð í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum en hún hentar einnig vel fullorðnu fólki til sjálfsnáms og foreldrum og öðrum sem aðstoða börn og unglinga í námi. Verkefnin í bókinni eru fáanleg á 8 hljóðsnældum hjá IÐNÚ.

87 bls., 1999, ISBN 9979670207

 

Verð: 1795 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Stafsetning handa framhaldsskólum Print Senda

Höfundur : Gunnlaugur V. Snævarr

Þetta er kennslu- og verkefnabók sem kemur nú út í aukinni og endurbættri útgáfu. Í bókinni eru stafsetningarreglurnar skýrðar á einfaldan hátt og hverri þeirra fylgir fjöldi verkefna. Þá eru aftast í bókinni misþung prófverkefni sem bæði er gott að nemandinn lesi sjálfur og eins er gott að lesa fyrir hann og þjálfa hann þannig enn frekar. Verkefnin byggir höfundur bókarinnar, Gunnlaugur V. Snævarr, á áralangri reynslu sinni sem íslenskukennari.

 

130 bls, 2005, ISBN 9979671564

 

Verð:3225 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Stíltækni Print Senda

Höfundur : Kristján Eiríksson

Kennslu- og handbók þar sem fjallað er um helstu hugtök máls og stíls. Bókin er sjálfstætt framhald af bókinni Máltækni eftir sama höfund. Með þessum bókum reynir höfundur að bæta úr þeim skorti sem verið hefur á handbókum um íslenska málbeitingu fyrir nemendur á framhaldsskólastigi. Með notkun þeirra geta námsmenn og aðrir, sem áhuga hafa á greininni, sparað sér tíma og fyrirhöfn við að fletta upp í fjölda ólíkra rita.

 

104 bls, 1990, ISBN 9979830085

 

Verð: 2230 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Strandið Print Senda

Höfundur : Hannes Sigfússon
Eiríkur Brynjólfsson tók saman

Þetta er skólaútgáfa þessarar merku skáldsögu en hún kom fyrst út árið 1955. Bókinni fylgja verkefni sem miðast við hvern kafla. IÐNÚ hefur einnig gefið út á hljóðsnældum upplestur Guðna Kolbeinssonar á sögunni.


114 bls, 1987, ISBN 9979830093

 

Verð:1030 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Sturlaugs saga starfsama - kennslub. í ísl. Print Senda

Höfundar: Kristján Jóhann Jónsson og Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Kennslubók í íslensku ætluð nemendum á almennri námsbraut.

 

71 bls., 2001, ISBN 9979670932

 

Verð: 1550 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Suttungur 1 - Ítarefnishefti Print Senda

Höfundur : Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Ítarefni við Suttung 1.

 

40 bls, 1996, ISBN 9979831456


Verð: 675 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Suttungur 1 - Kennslubók í bragfræði Print Senda

Höfundur : Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Í Suttungi 1 og 2 er fjallað um grundvallaratriði bragfræðinnar sem íslensk vísnagerð hefur byggst á um aldir. Höfundur sýnir fram á að grunnatriði bragfræðinnar „eru ekki flókin heldur þvert á móti svo einföld að því trúa fæstir … Allir sem eru sæmilega læsir og skrifandi geta lært að gera vísur.“ Í Suttungi 1 er fjallað um bragreglur, þ.e. hrynjandi, braglínur, rím, hákveður – lágkveður, ljóðstafi, forliði o.þ.h. Kennslubókinni fylgja ítarefnishefti og kennsluleiðbeiningar.

 

63 bls, 1996, ISBN 9979831448

 

Verð: 1400 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Suttungur 1 - Kennsluleiðbeiningar Print Senda

Höfundur : Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Kennsluleiðbeiningar við Suttung 1.

 

23 bls, 1996, ISBN 9979831472

 

Verð:2320 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Suttungur 2 - Ítarefnishefti Print Senda

Höfundur : Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Ítarefni við Suttung 2.

 

37 bls, 1996, ISBN 9979831499

 

Verð: 820 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Suttungur 2 - Kennslubók í bragfræði Print Senda

Höfundur : Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Í Suttungi 2 er fjallað um ýmsa bragarhætti, s.s. sléttubönd, limrur, dróttkvæðan hátt, fornyrðislag, runhendu, ljóðahátt o.fl. Bókinni fylgja ítarefnishefti og kennsluleiðbeiningar.


53 bls, 1996, ISBN 9979831480



Verð:1175 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Suttungur 2 - Kennsluleiðbeiningar Print Senda

Höfundur : Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Kennsluleiðbeiningar við Suttung 2.

 

17 bls, 1996, ISBN 9979831502

 

Verð: 2320 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Sýnisbók íslenskra bókm. frá 1550 til 1900 Print Senda

Kristján Eiríksson tók saman

Í þessari bók er leitast við að gefa nokkra mynd af helstu greinum skáldskapar sem stundaðar voru á Íslandi frá siðskiptum til aldamótanna 1900. Ýmislegt í bókmenntum og hugmyndastraumum á tímabilinu frá 1550 til 1800 stendur býsna langt frá stefnum og hugmyndum nútímans. Þó er þar sitthvað líkt og nú á dögum og þegar kemur að rómantík og raunsæi 19. aldar fer flest að koma kunnuglega fyrir sjónir. Bókmenntir þeirrar aldar eru og miklu betur rannsakaðar en hinna fyrri enda meginhluti þeirra aðgengilegur á prenti. Efnisval hefur miðast nokkuð við Bókastoð, ágrip af íslenskri bókmenntasögu eftir Kristján Eiríksson og Sigurborgu Hilmarsdóttur.

 

259 bls, 2003, ISBN 9979671122

 

Verð: 4565 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma (517 7200) eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Sýnisbók íslenskra bókmennta til 1550 Print Senda

Kristján Eiríksson tók saman

Í þessari bók eru ljóð og laust mál frá fornöld til siðskipta og hefur verið leitast við að gefa nokkra mynd af sem flestum greinum skáldskapar á því tímabili. Nokkurt mið hefur verið tekið af kennslu bókmennta í framhaldsskólum og þess vegna eru hér t.d. flest þau eddukvæði sem venja er að lesa á því skólastigi. Þá er gerð grein fyrir einstökum verkum eða bókmenntagreinum á undan sýnishornunum til þess að setja þau í sögulegt samhengi. Val efnis í þessa bók hefur miðast nokkuð við Bókastoð - Ágrip af íslenskri bókmenntasögu eftir Kristján Eiríksson og Sigurborgu Hilmarsdóttur.


266 bls., 1999, ISBN 9979670096

 

Verð: 4565 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Tilhugalíf Print Senda

Höfundur : Gestur Pálsson
Eiríkur G. Guðmundsson tók saman

Í þessu hefti er saga eftir Gest Pálsson. Eiríkur G. Guðmundsson bjó til prentunar, ritaði inngang, samdi skýringar og verkefni. Bókmenntahefti sem þessi eru einkum ætlað sem ítarefni við íslenskunám á framhaldsskólastigi.

 

96 bls, 1995, ISBN 9979831316

 

Verð: 1390 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Tíminn er eins og vatnið Print Senda

Höfundar: Brynja Baldursdóttir og Hallfríður Ingimundardóttir

Bókmenntasögunni Tíminn er eins og vatnið er ætlað að gefa framhaldsskólanemendum og öðrum lesendum innsýn í íslenska bókmenntasögu 20. aldar, en öldinni er skipt í fimm tímabil:

1. Angurværð nýrrar aldar 1900-1930,
2. kreppa og stríð 1930-1945,
3. byltingarárin 1945-70,
4. raunsæi ´68-kynslóðarinnar 1970-1985 og
5. hræringur 1985-2000.

Sérhvert tímabil hefst á umfjöllun um samfélagið enda eru bókmenntir afsprengi þess og þær endurspegla þau átök og það ástand sem þar ríkir hverju sinni. Þá er fjallað um bókmenntir og listir og varpað ljósi á þá bókmenntastefnu sem hefur mest áhrif á hverju tímabili. Ákveðin skáld eru valin sem fulltrúar tímabilsins og þeim gerð betri skil en öðrum. Einn höfundur er nokkurs konar burðarás í bókmenntasögunni og kemur við sögu á öllum tímabilum. Þetta er Halldór Laxness.

 

328 bls., 2008, ISBN 9789979672272

 

Verð: 5400 kr. -  Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Týndi bekkurinn - Kennslub. í ritun og stafsetn. Print Senda

Höfundar : Kristján Jóhann Jónsson og Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Bókin er ætluð tíunda bekk grunnskóla og fornámi í framhaldsskóla. Hún á að þjálfa nemendur jöfnum höndum í lestri, ritun og stafsetningu. Aðstæður og umhverfi í sögum bókarinnar gera kröfur til ímyndunarafls nemenda og reynt er að skapa viðfangsefni fyrir þá til að vinna með texta í skólastofunni. Það er trú höfunda að unglingar verði því betur talandi og skrifandi þeim mun fleiri vinnustundum sem þeir eyða í orð og orðasmíðar af ýmsu tagi.


91 bls, 1998, ISBN 9979670010

 

Verð: 1645 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Upp við fossa Print Senda

Höfundur: Þorgils gjallandi

Þórður Helgason bjó til prentunar, ritaði formála og samdi skýringar. Bókin kom fyrst út árið 1902. Verkefni fylgja hverjum bókarkafla auk lokaverkefna aftast í bókinni.


211 bls., 1996, ISBN 9979670150

 

Verð: 2355 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Vestur til Vínl. - Grænl. saga og Eiríks s. rauða Print Senda

Eysteinn Sigurðsson tók saman

Skólaútgáfa með skýringum og verkefnum ásamt litprentuðu korti af sögusviði.

 

104 bls., 1992, ISBN 9979830573

 

Verð: 2120 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Æfingar í málfræði Print Senda

Höfundur : Eiríkur Páll Eiríksson

Bókin er ætluð til upprifjunar á málfræði í fyrstu bekkjum framhaldsskóla. Lögð er áhersla á það að „til að geta talað um málfræði, lært málfræði og notað sér til gagns verður að þekkja hugtök hennar, fagmálið. Öll málfræði byggir á notkun hugtaka og æfingu í að fara með þau.“ Meginefni bókarinnar er orðflokkar og einkenni þeirra og greinarmerkjasetning. Auk þess fylgja bókinni fjölmörg verkefni.

 

108 bls, 1997, ISBN 9979831766


Verð: 1815 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Æfingar í setningafræði Print Senda

Höfundur : Eiríkur Páll Eiríksson

Bókin er ætluð til kennslu í grunnáföngum framhaldsskólanna og skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er fjallað almennt um setningafræði, s.s. setningarliði, setningarhluta, setningar og málsgreinar, aðalsetningar og aukasetningar, tengingar og greinarmerki. Síðari hlutinn er aftur um greinarmerki og orðaforða málsins, endurnýjun hans og breytingar á máli og stafsetningu. Þar er m.a. drepið á framburðarbreytingar, tökuorð, nýyrði, nýmerkingar, málstefnu o.fl. Bókinni fylgja fjölmörg verkefni.

 

70 bls, 1997, ISBN 9979831758

 

Verð: 1560 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Ögn um hljóðfræði Print Senda

Höfundur: Sigurborg Hilmarsdóttir

Kveri þessu er ætlað að gefa framhaldsskólanemum auðskiljanlega mynd af flóknu fyrirbæri, íslenskum málhljóðum og íslenskum framburði. Mörg verkefni eru í bókinni.

71 bls, 1994, ISBN 9979830786

 

Verð: 1450 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 

Iðnmennt SES ▪ Brautarholti 8 ▪ 105 Reykjavík ▪ Sími 517 7200 ▪ Fax 552 6793 ▪ idnu(hjá)idnu.is ▪ www.idnu.is

Ráðgjöf.net - Vefhönnun
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates