topleft
topright
Aðrar bækur
Við matreiðum Print Senda

Höfundar: Anna Gísladóttir og Bryndís Steinþórsdóttir

 

Bókin hefur að geyma fjölbreytt úrval hefðbundinna og nýrra uppskrifta sem hægt er að grípa til bæði hversdags og á hátíðarstundum. Leitast er við að hafa réttina einfalda og fljótlega en jafnframt lögð rík áhersla á næringargildi og hollustu.

    Aðferðir við eldamennskuna eru settar fram á skýran og aðgengilegan hátt þannig að bókin nýtist bæði byrjendum í matreiðslu sem og þeim sem lengra eru komnir en vantar nýjar hugmyndir að góðum réttum.

    Þá eru í bókinni ýmsar hagnýtar upplýsingar, svo sem leiðbeiningar um mál og vog, um geymslu og merkingar matvæla, næringarefnatöflur, töflur um suðu- og steikingartíma og orðskýringar.

 

336 bls, 2005, ISBN 997967167X

  

Verð: 4.330 kr. -  Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Skólalíf - Starf og siðir í latínuskólanum á Íslandi Print Senda

Höfundur: Guðlaugur Rúnar Guðmundsson

Þetta rit fjallar um starf og siði í íslensku latínuskólunum eftir siðaskipti: Skálholtsskóla (1553-784), Hólaskóla (1552-1802), Hólavallarskóla (1786-1804) og Bessastaðaskóla (1805-1846). Höfundur varpar ljósi á þætti í skóla- og menningarsögu landsins sem lítill gaumur hefur verið gefinn fram að þessu, m.a. löngu gleymda siði og venjur nemenda skólanna. Þeir voru einstæðir í skólasögu Evrópu, útkjálkaskólar þar sem klassísk fræði voru kennd við aðstæður sem í engu líktust þeim er borgaralegir skólar bjuggu við í nágrannalöndunun.

 

349 bls, 2000, ISBN 9979670215

  

Verð: 4.610 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Sönglög Print Senda

Höfundur : Þórarinn Guðmundsson

Þessi bók var gefin út í tilefni af aldarafmæli Þórarins þann 27. mars 1996. Helsti hvatamaður að útgáfunni var Hrafn Pálsson, en aðrir sem unnu að útgáfu sönglaganna voru Jónas Ingimundarson, Magnús Ingimarsson, Trausti Jónsson, Jón Þórarinsson og Gylfi Garðarsson, sem nótusetti bókina.

 

78 bls, 1996, ISBN 9979831650

 

Verð: 2950 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 
Iðnaðarmenn I Print Senda

Jóhanna Sveinsdóttir tók saman

Frásagnir sex merkismanna úr iðnaðarmannastétt. Þeir eru: Bjarni Einarsson skipasmíðameistari, Björgvin Frederiksen vélsmíðameistari, Gísli Ólafsson bakarameistari, Guðgeir Jónsson bókbandsmeistari, Jón Björnsson húsgagnasmíðameistari og byssusmiður og Sigurgestur Guðjónsson bifvélavirkjameistari.

 

228 bls, 1987, ISBN 9979806567

 

Verð: 2752 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

Iðnmennt SES ▪ Brautarholti 8 ▪ 105 Reykjavík ▪ Sími 517 7200 ▪ Fax 552 6793 ▪ idnu(hjá)idnu.is ▪ www.idnu.is

Ráðgjöf.net - Vefhönnun
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates