|
Snið og sniðteikningar fyrir grunnskóla |
|
|
|
Höfundar: Inger Öberg og Hervor Ersman
Ásdís Jóelsdóttir þýddi
Þetta kennsluefni er þannig hugsað að kennarar og nemendur í fata- og textílhönnun geti sótt í það hugmyndir. Það er einnig ætlað öðrum þeim sem sauma og vilja sjálfir læra að búa til sín eigin snið. Sniðteikning er heillandi handverk þar sem tilfinningin fyrir formi vex og dafnar í tengslum við hráefni og einstaklinga.
144 bls., 2001, ISBN 9979670819
Verð: 3210 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Snið og sniðteikningar - kvenfatnaður |
|
|
|
Höfundar: Inger Öberg og Hervor Ersman
Ásdís Jóelsdóttir þýddi
Nám í fataiðn- og textílgreinum hefur verið mikilvægur þáttur og sívaxandi á öllum skólastigum, þ.e. grunn-, framhalds- og háskólastigi. Þessar greinar tengjast listsköpun, hönnun og iðnaði þar sem mikil þróun og tækniframfarir eiga sér stað. Með tilkomu nýrrar aðalnámskrár verður nám í fataiðn- og textílgreinum skipulagðara og markvissara en áður. Nýtt námsefni er þar mikilvægt. Þessi bók er sérstaklega ætluð til kennslu og er efni hennar í upphafi miðað við hið einfalda en er á líður við hið flóknara og erfiðara og hentar því sem námsefni á öllum skólastigum. Þá á áhuga- og fagfólk á þessu sviði einnig möguleika á að nýta sér bókina til þess að auka og halda við þekkingu sinni. Bókinni fylgir sniðamappa.
312 bls, 1999, ISBN 9979670193
Verð: 6645 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina. |
|
Nánar...
|
|
|
Snið og sniðteikningar - herrafatnaður |
|
|
|
Höfundar: Inger Öberg og Hervor Ersman
Ásdís Jóelsdóttir þýddi
Í fyrsta skipti kemur út bók sem er sérstaklega ætluð fyrir sniðteikningu á herrafatnaði og er það kærkomin nýjung enda sniðteikning heillandi handverk. Á seinni tímum hefur herratískan breyst frá því að vera tæknilega klæðskerasaumuð yfir í þægilegri og hugmyndaríkari fatnað þannig að nú ætti ekki lengur að vera erfiðara að sauma herrafatnað en kvenfatnað. Lengi vel hefur verið þörf fyrir námsefni í almennri sniðteikningu fyrir herrafatnað. Þetta á ekki síður við um þá sem vilja búa til snið og sauma heima við enda hafa herrasnið ekki verið til á hinum almenna markaði um langan tíma.
Bókin er hugsuð sem hjálpartæki fyrir kennara og nemendur í hönnunar- og iðnnámi sem og áhugafólk sem þangað getur sótt hugmyndir og fylgt aðgengilegum leiðbeiningum.
182 bls, 2010, ISBN 9789979672562
Verð: 6645 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina. |
|
Nánar...
|
|
|
Fatasaumur - Saumtækni í máli og myndum |
|
|
|
Höfundur: Ásdís Jóelsdóttir
Í bókinni er að finna ítarlegar leiðbeiningar um máltöku og hvernig taka á upp snið, velja hentugt efni, vinna með sniðbreytingar og sníða. Megininnihaldið eru saumtækniaðferðir í máli og myndum, s.s. ýmsar gerðir af rennilásum, vösum, krögum, ermaklaufum og ermalíningum. Einnig er farið í vinnuferli við saum á fatnaði og hvernig fóðra á einfaldan jakka, pils og vesti. Stutt yfirlit er um saumavélina, textílfræði, orðskýringar, fatasögu og hvernig vinna má með eigin hugmyndir.
192 bls, 2011, ISBN 9789979672913
Verð: 4620 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|