|
|
Heilsurækt – Heilsufræði
|
Þjálfun - Heilsa - Vellíðan |
|
|
|
Höfundar: Elbjørg J. Dieserud, John Elvestad og Anders O. Brunes
Anna Dóra Antonsdóttir þýddi
IÐNMENNT-IÐNÚ hefur gefið út nýja útgáfu af bókinni Þjálfun, heilsa, vellíðan. Bókin er þýdd úr norsku og var fyrri íslenska útgáfan gefin út árið 1990. Seinni íslenska útgáfan, sem nú er gefin út, er í raun fimmta norska útgáfan og er hún til muna efnismeiri en sú sem var gefin út fyrir tíu árum.
288 bls., 2000, ISBN 9979670533
Tilboðsverð: 3.995 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina. |
|
Nánar...
|
|
|
Þjálfun-heilsa-vellíðan - Vinnubók |
|
|
|
Höfundar: Elbjørg J. Dieserud, John Elvestad og Anders O. Brunes
Anna Dóra Antonsdóttir þýddi
Íþróttir eru námsgrein þar sem nemendur öðlast líkamlega og andlega vellíðan við iðkun hinna ýmsu íþróttagreina. Námsefnið miðast eins og hægt er við þá kennnslu sem fram fer í kennslustundum. Nemendur verða þó að tileinka sér hluta námsefnisins með sjálfstæðri vinnu. Til þess er vinnubókin gagnleg.
88 bls., 2000, ISBN 9979670541
Verð:1900 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina. |
|
|
Sjúkdómar í mönnum - Kennsluefni f. framh.sk. |
|
|
|
Höfundur : Bogi B. Ingimarsson
Orsakir flestra sjúkdóma tengjast frumulöskun á einn eða annan hátt. Í þessari bók er fjallað um helstu gerðir frumulöskunar og viðbrögð frumna við álagi. Algengustu orsakir sjúkdóma í mönnum fá nokkra umfjöllun, t.d. umhverfissjúkdómar, sýkingar, erfðaveilur og æxlisvöxtur. Þá er allítarleg umfjöllun um algengustu sjúkdóma í hverju líffærakerfi fyrir sig, orsakir þeirra og helstu sjúkdómseinkunnum lýst.
|
|
Nánar...
|
|
|
Matvæli - fersk eða feyruð |
|
|
|
Höfundar : Grete Bertelsen, Charlotte Rasch og Elin Kirkegaard
Anna Gísladóttir og Aðalsteinn Geirsson þýddu
Bókin hefur undirtitilinn Um lífverur og aðskotaefni í matvælum. Hún er þýdd úr dönsku (Levnedsmiddelhygiejne) og er kennsluefni um örverur og mikilvægi hreinlætis við meðferð matvæla. Efnið er staðfært á þann hátt að þess er getið ef skaðlegar örverur hafa fundist hér eða valdið matarsjúkdómum og gerð er grein fyrir þeim kröfum, sem gerðar eru hér á landi um meðferð og ástand matvæla.
221 bls, 1991, ISBN 9979806605
verð: 3505 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina. |
|
|
Hreyfing og hreysti - Kennslub. í líkamsrækt |
|
|
|
Höfundur : Sólveig Þráinsdóttir
Þetta er kennslubók í líkamsrækt sem aðallega er sniðin að eldri bekkjum grunnskóla. Einnig ætti hún að nýtast öllum þeim sem vilja halda líkama sínum í þjálfun. Hún er skrifuð þannig að hægt er að tengja hana verklegum æfingum og öðrum verkefnum sem eru í bókinni. Þessi bók bætir úr brýnni þörf sem er á kennsluefni í íþróttafræði fyrir grunnskólastigið.
87 bls, 1992, ISBN 9979830344
verð:3040 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina. |
|
|
Sjálfstjórn og heilsa |
|
|
|
Höfundar: Jóhann Ingi Gunnarsson, Bragi Sæmundsson og Sæmundur Hafsteinsson
Góð heilsa er verðmæti sem unnt er að varðveita og ávaxta á ýmsa vegu. Flestir vita að hreyfing, hollur matur og andlegt jafnvægi gegna þar mikilvægu hlutverki. En stundum er ekki nóg að vita hvaða þarf að gera til að ná árangri. Oft skortir viljastyrk til að standast freistingar, taka upp nýja siði, halda ró sinni og láta ekki koma sér úr jafnvægi.
Þessari bók er ætlað að bæta úr brýnni þörf. Á skýran og einfaldan hátt er lesandanum kennt að þekkja áhrif streitu, auka næmi fyrir eigin líkama og bæta sjálfstjórnina. Í bókinni má m.a. finna leiðbeiningar um slökun, hugþjálfun og hugrækt en einnig aðferðir til að auka sjálfstraust, tileinka sér jákvæð viðhorf og vinna bug á frestunaráráttu. Þá er fjallað um aðferðir til að hætta að reykja og hvernig unnt er að tileinka sér breyttan og bættan lífsstíl. Hér er á ferðinni ný og aukin útgáfa bókarinnar.
151 bls., 2011, ISBN 978-9979-67-292-0
Verð: 3.395 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Þjálfun, heilsa, vellíðan - handb. íþróttakennara |
|
|
|
Höfundar : Elbjørg Andersen, John Elvestad og Arne Sivertsen
Bárður R. Jónsson þýddi
Þessi bók er ætluð íþróttakennurum sem hjálpargagn við kennslu bókarinnar Þjálfun - heilsa - vellíðan, sem IÐNÚ gaf út árið 1990.
Í handbókinni eru hagnýtar ráðleggingar um hvernig flétta megi saman bóklega og verklega kennslu, auk þess sem fjallað er ítarlegar um efnið en í flestum köflum kennslubókarinnar.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
Krækjur

Aðildarskólar
Iðnmenntar
|