topleft
topright
Líffræði – Lífeðlisfræði - Erfðafræði
Erfðafræði - kennslubók handa framhaldssk. Print Senda

Höfundur: Örnólfur Thorlacius

Erfðafræði eftir Örnólf Thorlacius er komin út að nýju. Fyrri útgáfur þessarar kennslubókar komu út 1978 og 1991. Erfðafræðin hefur nú unnið sér fastan sess sem sjálfstæður áfangi á náttúrufræðibrautum og sem valgrein á námskrá framhaldsskóla. Þær byltingarkenndu framfarir sem orðið hafa á síðustu áratugum í erfðafræði og sameindaerfðafræði setja að sjálfsögðu svip á bókina, sem er nokkru stærri en fyrri útgáfur hennar, og er verulegur hluti vaxtarins myndefni.

 

252 bls, 2003, ISBN 9979671149

 

Verð: 6580 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

Nánar...
 
Lífeðlisfræði - kennslub. h. framhaldsskólum Print Senda

Höfundur: Örnólfur Thorlacius

Lífeðlisfræðin fjallar um lífsstörfin, um virkni líkamans, hvernig saman starfa frumur hans, vefir og líffæri. Fræðiheiti greinarinnar, fysiologia, kemur fyrst fyrir í grískum ritum um 600 f. Kr., og merkir þá nánast náttúruvísindi eða náttúruheimspeki, könnun á eðli náttúrlegra hluta, jafnt í lífvana náttúru sem í lífheiminum. Í lok miðalda táknaði hugtakið vísindin um störf heilbrigðs mannslíkama, og á 19. öld innlimaði lífeðlisfræðin loks lífsstörf allra lifandi vera, örvera og plantna jafnt sem dýra og manna.

304 bls., 2002, ISBN 9979670975

 

Verð: 6520 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Líffræði - Kjarni fyrir framhaldsskóla Print Senda

Höfundur: Örnólfur Thorlacius

Í námskrá fyrir framhaldsskóla eru skilgreindir þrír kjarnaáfangar í náttúrufræði. Þetta er kennslubók í líffræðiþætti þessa kjarna, NÁT 103.

Um nokkra áratugi hefur kjarnanámsefni í líffræði í íslenskum framhaldsskólum verið þýtt úr erlendum tungum. Öll uppsetning, og ekki síst myndefni, hefur miðast við erlendar aðstæður. En þótt hjörtum mannanna svipi hvarvetna saman, eru sóleyjarnar og fíflarnir í varpanum, þangið í fjörunni, fuglar, fiskar, selir og hvalir hluti af lífríki Íslands. Að þessu leyti er líffræðin þjóðleg fræði, og ungir sem aldnir þurfa að kynnast lífinu í kringum sig. Þessi bók er samin á íslensku, með lífríki Íslands í huga.

236 bls., 2001, ISBN 9979670738

 

Verð: 5540 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

Nánar...
 
Sýklafræði fyrir framhaldsskóla Print Senda

Höfundur : Bogi B. Ingimarsson

Sýklafræði er ein af hliðargreinum líffræðinnar. Sýkill er samheiti yfir lífverur sem sýkja eða sýkt geta menn. Flokka má sýkla í einfrumusýkla og sníkjudýr. Sýklar, sem tilheyra einfrumusýklum, eru veirur, bakteríur og sveppir. Sníkjudýr, sem sýkja menn hérlendis, fá nokkra umfjöllun. Fjallað er um helstu sýklahópa og algenga sjúkdóma, sem þeir valda í mönnum, ásamt sjúkdómseinkennum. 
 

Nánar...
 
Örverufræði fyrir framhaldsskóla Print Senda

Höfundur : Bogi B. Ingimarsson

Örverufræði er ein af hliðargreinum líffræðinnar en kennsla í henni hefur aukist mjög á framhaldsskólastiginu á undanförnum árum. Margir þættir örverufræði eru vel fallnir til kennslu í líffræði fyrir þá nemendur sem hyggja á framhaldsnám í skyldum greinum, t.d. læknisfræði, líffræði, hjúkrunarfræði, matvælafræði, meinatækni o.fl.

Nánar...
 
Örverufræði - Vinnubók með verkl. æfingum Print Senda

Höfundur : Bogi B. lngimarsson

Vinnubók með verklegum æfingum, gefin út í tengslum við Örverufræði fyrir framhaldsskóla.

 

107 bls, 1992, ISBN 9979830271

 

verð: 1795 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst ( Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það. ) ef þið viljið panta bókina.

 

 
Líffæra- og lífeðlisfræði - síðara bindi Print Senda

Regína Stefnisdóttir tók saman

Þessi bók er handbók um mannslíkamann. Hún er kynning á líffærafræði - vísindagreininni um byggingu mannslíkamans, og lífeðlisfræði - vísindagreininni um starfsemi líkamans. Helsta hjálpargagn við samantekt bókarinnar var Understanding Human Anatomy and Physiology eftir Solomon og Phillips.

Nánar...
 
Líffæra- og lífeðlisfræði - fyrra bindi Print Senda

Regína Stefnisdóttir tók saman

Þessi bók er handbók um mannslíkamann. Hún er kynning á líffærafræði - vísindagreininni um byggingu mannslíkamans, og lífeðlisfræði - vísindagreininni um starfsemi líkamans. Helsta hjálpargagn við samantekt bókarinnar var Understanding Human Anatomy and Physiology eftir Solomon og Phillips.

Nánar...
 

Iðnmennt SES ▪ Brautarholti 8 ▪ 105 Reykjavík ▪ Sími 517 7200 ▪ Fax 552 6793 ▪ idnu(hjá)idnu.is ▪ www.idnu.is

Ráðgjöf.net - Vefhönnun
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates