|
|
|
Óvættaför 8 - Ofurapinn Klói |
|
Höfundur: Adam Blade
Þýðandi: Árni Árnason
Þetta er áttunda bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu, en jafnframt önnur bókin af sex sem fjalla um Gullnu brynjuna.
Galdramaðurinn vondi, Malvel, stal gullnu töfrabrynjunni og dreifði hlutum hennar víðs vegar um Avantíu. Tom hefur heitið því að finna alla hluta brynjunnar - en þeirra er gætt af sex hryllilegum óvættum. Tekst Tom að sigra ofurapann Klóa djúpt inni í Dimmaskógi? Leggur þú í óvættaförina?
Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.
128 bls., 2012, ISBN 978-9979-67-303-3
Verð: 2.450 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Ráðstefna Iðnmenntar, Starfsmenntun, skóli – atvinnulíf – gildi starfsmenntunar í íslensku samfélagi, var haldin nýlega á Grand Hótel Reykjavík. Um 150 manns sóttu ráðstefnuna, hlýddu á fjölbreytta fyrirlestra í byrjun og tóku svo þátt í hópastarfi eftir kaffihlé.
Fyrirlesarar voru: Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, sem talaði um stefnu ráðuneytisins í starfsmenntun, Baldur Gíslason, skólameistari Tækniskólans, sem rakti þróun starfsmenntunar frá meistaranámi til verknámsskóla, Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem ræddu sýn atvinnulífsins á starfsmenntun, Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs HÍ, sem talaði um skólavæðingu menntunar og hversu lengi menntunin dugar og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, sem kynnti helstu þætti um bestu leiðir í starfsmenntun að mati OECD. Ráðstefnustjóri var Ársæll Guðmundsson, skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði. |
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Árni Árnason
Myndskreyting: Halldór Baldursson
Geitungurinn er saminn með það að markmiði að gera lestrarnám og lestrarþjálfun barna að skemmtilegu viðfangsefni og auka áhuga þeirra á lestri texta og talna, skrift og reikningi. Krossgátugeitungurinn er saminn í þessum anda og hæfir börnum sem farin eru að lesa og skrifa og hafa gaman af glímunni við stafi og orð.
24 bls, 2011, ISBN 978-9979-67-293-7
Verð: 935 kr - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina. |
|
|
Edda - Prologus, Gylfag. og frásagnark. Skáldskaparmála |
|
Gunnar Skarphéðinsson bjó til prentunar
Þetta er ný og endurskoðuð skólaútgáfa Snorra-Eddu. Hér er Prologus verksins hafður með auk Gylfaginningar og lengstu frásagnarkafla Skáldskaparmála. Þá fylgja örfáir kaflar úr Ynglingasögu með í viðauka. Textinn er í öllum aðalatriðum færður til nútímastafsetningar og fylgja skýringar bundnu sem óbundnu máli. Í bókinni eru vísnaskýringar og skrár auk nýs eftirmála um Snorra Sturluson og verk hans.
206 bls, 2011, ISBN 978-9979-67-295-1
Verð: 3.630 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina. |
|
|
Höfundar: Jóhann Ingi Gunnarsson, Bragi Sæmundsson og Sæmundur Hafsteinsson
Góð heilsa er verðmæti sem unnt er að varðveita og ávaxta á ýmsa vegu. Flestir vita að hreyfing, hollur matur og andlegt jafnvægi gegna þar mikilvægu hlutverki. En stundum er ekki nóg að vita hvaða þarf að gera til að ná árangri. Oft skortir viljastyrk til að standast freistingar, taka upp nýja siði, halda ró sinni og láta ekki koma sér úr jafnvægi.
Þessari bók er ætlað að bæta úr brýnni þörf. Á skýran og einfaldan hátt er lesandanum kennt að þekkja áhrif streitu, auka næmi fyrir eigin líkama og bæta sjálfstjórnina. Í bókinni má m.a. finna leiðbeiningar um slökun, hugþjálfun og hugrækt en einnig aðferðir til að auka sjálfstraust, tileinka sér jákvæð viðhorf og vinna bug á frestunaráráttu. Þá er fjallað um aðferðir til að hætta að reykja og hvernig unnt er að tileinka sér breyttan og bættan lífsstíl. Hér er á ferðinni ný og aukin útgáfa bókarinnar.
151 bls., 2011, ISBN 978-9979-67-292-0
Verð: 3.395 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Leiðarvísir að unglingsárunum fyrir sniðugar stelpur |
|
Höfundur: Anita Ganeri
Þýðandi: Kristín Svava Tómasdóttir
Fyrir margar skynsamar stelpur getur kynþroskaskeiðið verið spennandi tími. En hann getur líka verið erfiður og flókinn: blæðingar, strákar, pirrandi foreldrar, brjóst, vinátta, skapsveiflur! Þessi bók hefur að geyma góð ráð um allt sem viðkemur unglingsárunum. Efnið er sett fram á skemmtilegan og lifandi hátt og bent á sniðugar vefsíður til frekari upplýsingar. Hér geta allar skynsamar stúlkur uppgötvað lykilinn að áhyggjulausum kynþroska.
95 bls., 2011, ISBN 9789979672944
Verð: kr. 2.640 - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
|
Fatasaumur - Saumtækni í máli og myndum |
|
Höfundur: Ásdís Jóelsdóttir
Í bókinni er að finna ítarlegar leiðbeiningar um máltöku og hvernig taka á upp snið, velja hentugt efni, vinna með sniðbreytingar og sníða. Megininnihaldið eru saumtækniaðferðir í máli og myndum, s.s. ýmsar gerðir af rennilásum, vösum, krögum, ermaklaufum og ermalíningum. Einnig er farið í vinnuferli við saum á fatnaði og hvernig fóðra á einfaldan jakka, pils og vesti. Stutt yfirlit er um saumavélina, textílfræði, orðskýringar, fatasögu og hvernig vinna má með eigin hugmyndir.
192 bls, 2011, ISBN 9789979672913
Verð: 4620 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Óvættaför 7 - Ófreskjusmokkfiskurinn Sepja |
|
Höfundur: Adam Blade
Þýðandi: Árni Árnason
Þetta er sjöunda bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu, en jafnframt fyrsta bókin af sex sem fjalla um Gullnu brynjuna.
Galdramaðurinn vondi, Malvel, stal gullnu töfrabrynjunni og dreifði hlutum hennar víðs vegar um Avantíu. Tom hefur heitið því að finna alla hluta brynjunnar - en þeirra er gætt af sex hryllilegum óvættum. Tekst Tom að sigra í neðansjávarbardaga við ófreskjusmokkfiskinn Sepju? Leggur þú í óvættaförina?
Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.
128 bls., 2011, ISBN 978-9979-67-288-3
Verð: 2.450 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
|
Höfundur: Vala Þórsdóttir og Agnieszka Nowak
Súsanna er 10 ára hálfpólsk og hálfíslensk stelpa. Hún er forvitin, sjálfstæð og eldklár, enda finnur hún áhugaverðar lausnir á þeim vandamálum sem koma upp. Hún er smámælt og þjálfar sig í að finna og búa til S-laus orð og er alltaf með samheitaorðabókina í töskunni. Afi hennar og amma fluttu með henni og foreldrum hennar frá Gdansk í Póllandi. Þau kunna lítið í íslensku og finnst margt skrýtið á Íslandi. Súsanna þarf því oft að túlka fyrir þau og útskýra aðstæður.
Bráðsniðug og áhugaverð barnabók sem gefur innsýn í daglegt líf stelpu af blönduðu þjóðerni. Þankaganga Myślobieg er bæði á íslensku og pólsku. Bókin skiptist jafnt mili texta og teikninga sem eru ýmist sögur eða framhald af söguþræðinum.
Þankaganga Myślobieg fékk Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna 2010 í flokki barnabókmennta, Vorvinda, viðurkenningu IBBY á Íslandi og er á heiðurslista alþjóðasamtaka IBBY 2012.
117 bls., 2011, ISBN 9789979672906
Verð: 2815 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Vala Þórsdóttir og Agnieszka Nowak
Súsanna og fjölskylda hennar fara til Póllands í fyrsta sinn síðan þau fluttu til Íslands fyrir sex árum. Sumarleyfið í Gdańsk er ferlega skemmtilegt og Súsanna uppgötvar ansi margt um sjálfa sig, fjölskyldu sína og hitt landið sitt, Pólland. Súsanna kemst að því að hún talar stundum eins og smákrakki á pólsku en stundum eins og gömul kona, og sum orð kann hún bara á öðru tungumálinu. Við dvölina verður hún svolítið ringluð yfir því hvort hún er Íslendingur eða Pólverji, hún upplifir sig nefnilega stundum sem útlending í báðum löndunum. En þegar hún kynnist Sonju, sem er hálfsænsk og hálfpólsk, áttar hún sig á því að það er bara eðlilegt að finnast maður stundum vera útlendingur, sérstaklega þegar maður er hálfútlenskur!
Þankaganga Myślobieg 2 – Súsanna í Póllandi er sjálfstætt framhald af Þankaganga Myślobieg sem fékk Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna 2010 í flokki barnabókmennta, Vorvinda, viðurkenningu IBBY á Íslandi og er á heiðurslista alþjóðasamtaka IBBY 2012.
123 bls., 2011, ISBN 9789979672890
Verð: 2815 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Óvættaför 6 - Eldfuglinn Epos |
|
Höfundur: Adam Blade
Þýðandi: Árni Árnason
Þetta er sjötta bókin í flokknum Óvættaför um Konungsríkið Avantíu:
Avantíu er ógnað af fornum verndarvættum sínum sem illviljaður töframaður hefur lagt vond álög á. Tom verður að berjast við hrímþursinn Nanúk til að bjarga landi sínu og þjóð. Tekst honum það?
Léttlestrarbók fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára.
124 bls., 2011, ISBN 978-9979-67-287-6
Verð: 2.450 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
|
Höfundar: Poul-Arne Callesen, Allan Petersen og Niels Poulsen
Þýðandi: Jóna Dóra Óskarsdóttir
Bókin spannar öll helstu undirstöðuatriði sem nemandi í grunndeild málmiðna þarf að tileinka sér meðan á námi stendur. Í tíu köflum er fjallað ítarlega um sérhvern hluta námsins, allt frá sígildum aðferðum til nýjustu tækni innan málmiðnaðarins
384 bls., 2011, ISBN 9789979672807
Verð: 6940 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
ef þið viljið panta bókina. |
|
Nánar...
|
|
|
Endnu engang Dansk, - åhhh hjælp! |
|
Höfundur: Jette Dige Pedersen
Hér er á ferðinni rækilega endurskoðuð útgáfa á Dansk, åhhh hjælp!, sem er kennslubók í dönsku fyrir nemendur í fyrsta áfanga í framhaldsskóla.
131 bls., 2011, ISBN 9789979677291
Verð: 3685 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Fjölbreyttar leiðir í námsmati |
|
Höfundur: Erna Ingibjörg Pálsdóttir
Um er að ræða handbók ætluð skólastjórum, kennurum og öðrum sem áhuga hafa á fjölbreytni í námsmati. Fjallað er um lykilþætti námsmats sem felst einkum í því að íhuga tilgang matsins og ákveða hvað eigi að meta, hvaða matsaðferð henti best, hvernig best sé að miðla upplýsingum og til hverra.
213 bls., 2011, ISBN 9789979672692
Verð: 4440 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Skóli og skólaforeldrar - ný sýn á samstarfið um nemandann |
|
Höfundur: Nanna Kristín Christiansen
Þessi bók er skrifuð fyrir grunnskólakennara og foreldra grunnskólabarna í þeim tilgangi að vekja þá til umhugsunar og umræðu um hlutverk sitt og benda á mikilvægi samstarfs foreldra og skóla. Með bókinni er hvatt til þróunar samstarfs í samræmi við þarfir og væntingar samtímans, bent er á mögulegar leiðir, hagnýtar upplýsingar og ráð sem stuðlað geta að árangursríku samstarfi foreldra og kennara (úr inngangi höfundar).
240 bls., endursk. útg. 2011, ISBN 9789979672784
Verð: 4770 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst (
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
) ef þið viljið panta bókina.
|
|
Nánar...
|
|
|

Höfundur: Magnús Einarsson
Þessi kennslubók er ætluð nemendum í félagsfræði á framhaldsskólastigi. Hún hentar einnig nemendum á fyrsta ári í háskóla svo og hinum almenna lesanda. Grundvallarhugtök félagsfræðinnar eru skýrð og meginsjónarhorn hennar kynnt. Fjallað er um nokkur mikilvæg viðfangsefni félagsfræðinnar. Námsmarkmið og samantekt fylgja hverjum kafla.
344 bls, 2011, ISBN 9789979672760
Verð: 5280 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
ef þið viljið panta bókina. |
|
Nánar...
|
|
|
Trésmíði - hönnun, útfærsla, verkskipulag |
|
Höfundar: Walter Ehrmann, Wolfgang Nutsch og Bernd Spellenberg
Sigurður H. Pétursson þýddi
Í bókinni er fjallað um flest það sem trésmíði viðkemur og lögð áhersla á að sýna efni og útfærslur í þrívídd. Fjallað er um trésmíðateikningar, grunnhönnun, teikniskrift, málreglur og grunnatriði við teikningu sem og útfærslu fyrir handsmíði og vélsmíði á húsgögnum, en einnig um innréttingar, raðsmíði, húshluta og milliveggi o.fl. Auk þess er í bókinni margvíslegt myndefni fyrir trésmiði og verkefnabanki fyrir nemendur.
316 bls., 2010, ISBN 9789979672531
Verð: 6425 kr. - Vinsamlegast hafið samband í síma 517 7200 eða sendið okkur póst
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
ef þið viljið panta bókina. |
|
Nánar...
|
|
|
|
Krækjur

Aðildarskólar
Iðnmenntar
|